Eldri fréttir
Ályktun frá stjórn Kennarasambands Íslands

Stjórn Kennarasambands Íslands lýsir yfir fullum stuðningi við baráttu Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna fyrir bættum launakjörum. Stjórnin hvetur Launanefnd sveitarfélaga til að hverfa frá þeirri stefnu sinni að fjötra starfsmenn sveitarfélaga í spennitreyju lágra launa. Það er ólíðandi að grunnlaun starfsmanna sveitarfélaga sem lægst hafa launin skuli ekki hækka í það minnsta til jafns við það sem gerst hefur almennt meðal launafólks á Íslandi að undanförnu.

Stjórn KÍ hvetur sveitarstjórnarmenn til að sýna sanngirni og ganga þegar í stað til samninga við Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna.

Nánar...


Þessi vefur er prófaður og vottaður
samkvæmt alþjóðlegum stöðlum.

Erlendar fréttir
Borði

mars

Kæru íbúar Snæfellsness - frá SNÆ hóp FSN

SNÆ hópruinn með gestum sínumEins og sumum eflaust er kunnugt hefur áfangi verið kenndur í Fjölbrautaskóla Snæfellinga síðustu þrjú árin sem kallast SNÆ eða Snæfellsnes.  Áfanginn hefur verið í samstarfi við skóla í Svíþjóð og Finnlandi og gengur út á það að kynnast menningu landanna, sögu og fólki og var hann í umsjón þeirra Sólrúnar Guðjónsdóttur, Hrafnhildar Hallvarðsdóttur og Berglindar Axelsdóttur.

Fyrsta árið vann Snæ-hópurinn með sögur af Snæfellsnesinu svo sem af Bárði Snæfellsás og í lok þess skólaárs heimsóttum við Fredrika Bremer skólann í Haninge, Stokkhólmi. Annað árið fjölluðum við mikið um finnsku söguljóðin Kalevala og draugasögur af nesinu. Í lok þess skólaárs var svo ferðinni heitið til Finnlands þar sem við heimsóttum Kainuun Ammattiopisto skólann í Kajaani. Þetta þriðja og síðasta ár okkar einkenndist svo af verkefnum um hafið og gerðum við t.d. uppskriftarbók með allskyns sjávarréttum, myndbönd um verur sjávar, tókum viðtöl við fólk í útgerð og fleira. Þann 8. mars síðastliðinn var komið að okkur að taka á móti vinum okkar og heppnaðist sú heimsókn með eindæmum vel.

Lesa meira...

 

Samningur við markaðsstofur landshlutanna undirritaður í gær

Samningur við markaðsstofur landshlutannaVið hátíðlega athöfn í Utanríkissráðuneytinu í gær staðfestu Össur Skarphéðinsson ferðamálaráðherra og forsvarsmenn markaðsstofa samninga við sjö markaðsstofur landshlutanna sem annast munu markaðsmál ferðaþjónustu innanlands.

Vonast er til að samningar þessi leggi grundvöll að tryggum rekstri þeirra á næstu árum. Samstarfið byggir á sérstakri fjárveitingu af fjáraukalögum og á þeirri forsendu að sveitarfélög og fyrirtæki komi einnig á afgerandi hátt að rekstrinum á móti ríkinu.

Lesa meira...

 

Vikublaðið Þeyr er komið á netið

forsíða 12. tbl vikublaðsins
Vikublaðið Þeyr er komin út hér á netið.
Hægt er að skoða það hér
 

Skúlína Hlíf skipuð skólameistari við Fjölbrautaskóla Snæfellinga

Skúlína Hlíf KjartansdóttirMenntamálaráðherra hefur skipað Skúlínu Hlíf Kjartansdóttur í embætti skólameistara Fjölbrautaskóla Snæfellinga til fimm ára frá 1. apríl 2009 að telja að fenginni umsögn skólanefndar skólans. Tíu umsóknir bárust um embætti skólameistara fjölbrautaskólans.

 
Fleiri greinar...
Borði
Facebook MySpace Twitter Digg Delicious Stumbleupon Google Bookmarks RSS Feed 
<<  September 2010  >>
 S  M    M  F  F  L 
     1  2  3  4
  5  6  7  8  91011
12131415161718
19202122232425
2627282930