Eldri fréttir
Sumarferð Félags fyrrverandi alþingismanna um Snæfellsnes

Árleg sumarferð Félags fyrrverandi alþingismanna var farin um um Snæfellsnes 24. júlí sl. Félagið var stofnað 1986 og er tilgangur þess fyrst og fremst að vera vettvangur fyrrverandi alþingismanna til að rifja upp gömul kynni og ræða landsins gagn og nauðsynjar. Má segja að þau samskipti öll séu mun vinsamlegri en sú mynd sem gjarnan birtist af Alþingi í fjölmiðlum. Aðalsamkomur félagsins eru árlegur aðalfundur, árshátíð og svo sumarferðir. Ánægjulegt er að eftirlifandi makar fyrrverandi alþingismanna koma líka til að gleðjast með á árshátíðum og í hinum vinsælu sumarferðum. Félagið hefur einnig samband við systurfélög á Norðurlöndum og skiptist á heimsóknum við þau.

Nánar...


Þessi vefur er prófaður og vottaður
samkvæmt alþjóðlegum stöðlum.

Erlendar fréttir
Borði

Ferðamennska í fyrirrúmi á bæjarstjórnarfundi í gær.

Björg Ágústsdóttir og Guðmundir IngiÞað var rækilega minnt á mikilvægi ferðaþjónustunnar sem atvinnugreinar á bæjarstjórnarfundi sem haldinn var í gær fimmtudaginn 19. mars.  Fyrsti liður á dagskrá var kynning Jónasar Guðmundssonar forstöðumanns Markaðsstofu Vesturlands á starfsemi hennar en meginhlutverk Markaðstofunnar verður fyrst um sinn að koma á framfæri til ferðamanna upplýsingum um hvaðeina sem lýtur að ferðamennsku á svæðinu sem heild.  Næsti liður á dagskrá var kynning Bjargar Ágústsdóttur starfsmanns Alta, á drögum að Ferðamálastefnu Grundarfjarðarbæjar. Tillögur ráðgjafyrirtækisins Alta verða teknar fyrir af sérstökum vinnuhópi sem kosinn var á Bæjarstjórnarfundinum og verður stefnumótunin tekin til formlegrar afgreiðslu eftir að sá vinnuhópur lýkur störfum sem verður væntanlega á vordögum. Í tillögum þeim sem Björg kynnti er lögð áhersla á skapa Grundarfirði sérstöðu sem ferðamannastaðar og verður spennandi að sjá hver verður niðurstaðan eftir starf vinnuhóps og afgreiðslu Bæjarstjórnar. Ferðamannaþjónustan mun í dag vera þriðji stærsti atvinnuvegurinn  á Íslandi og ljóst að þar getur Grundarfjörður bætt við sig stærri hluta ef rétt er á málum haldið.
 
Borði
Facebook MySpace Twitter Digg Delicious Stumbleupon Google Bookmarks RSS Feed 
<<  September 2010  >>
 S  M    M  F  F  L 
     1  2  3  4
  5  6  7  8  91011
12131415161718
19202122232425
2627282930