Við hátíðlega athöfn í Utanríkissráðuneytinu í gær staðfestu Össur Skarphéðinsson ferðamálaráðherra og forsvarsmenn markaðsstofa samninga við sjö markaðsstofur landshlutanna sem annast munu markaðsmál ferðaþjónustu innanlands.
Vonast er til að samningar þessi leggi grundvöll að tryggum rekstri þeirra á næstu árum. Samstarfið byggir á sérstakri fjárveitingu af fjáraukalögum og á þeirri forsendu að sveitarfélög og fyrirtæki komi einnig á afgerandi hátt að rekstrinum á móti ríkinu.