Eldri fréttir
Ályktun frá stjórn Kennarasambands Íslands

Stjórn Kennarasambands Íslands lýsir yfir fullum stuðningi við baráttu Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna fyrir bættum launakjörum. Stjórnin hvetur Launanefnd sveitarfélaga til að hverfa frá þeirri stefnu sinni að fjötra starfsmenn sveitarfélaga í spennitreyju lágra launa. Það er ólíðandi að grunnlaun starfsmanna sveitarfélaga sem lægst hafa launin skuli ekki hækka í það minnsta til jafns við það sem gerst hefur almennt meðal launafólks á Íslandi að undanförnu.

Stjórn KÍ hvetur sveitarstjórnarmenn til að sýna sanngirni og ganga þegar í stað til samninga við Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna.

Nánar...


Þessi vefur er prófaður og vottaður
samkvæmt alþjóðlegum stöðlum.

Erlendar fréttir
Borði

Vorskólinn 2009

vorskóli 2009Í vetur hefur verið gott samstarf á milli leik- og grunnskóla eins og undanfarin ár.  „Brúum bilið“ verkefnið hefur fest sig í sessi og hafa elstu börnin í leikskólanum komið í nokkrar heimsóknir í grunnskólann í vetur. Dagana 14. – 20. maí var svo komið að vorskólanum.  Íslenska fánanum var flaggað í tilefni af komu barnanna en það er ávallt mikil tilhlökkun hjá börnum, foreldrum og starfsfólki skólans þegar komið er að þessum tíma.  Fjölbreytt dagskrá var þessa daga. Nemendur fengu meðal annars að prófa smíðar, textílmennt, heimilisfræði og tölvur, að ógleymdu að fá að takast á við stærðfræðitengd viðfangsefni og stafaverkefni.

Jafnframt fengu börnin tækifæri til þess að heimsækja heilsdagsskólann og krakkana sem þar eru.  Það sem var þó mest spennandi hjá börnunum þessa daga voru frímínúturnar og nestið.   Við þökkum fyrir frábæra samveru  og hlökkum til komandi hausts.vorskóli 2009

vorskóli 2009vorskóli 2009
 
Borði
Facebook MySpace Twitter Digg Delicious Stumbleupon Google Bookmarks RSS Feed 
<<  September 2010  >>
 S  M    M  F  F  L 
     1  2  3  4
  5  6  7  8  91011
12131415161718
19202122232425
2627282930