Eldri fréttir
Börn og umhverfi

Börn ug umhverfi er heiti á námskeiði sem haldið er árlega fyrir nemendur í 6. bekk. Námsefni og skipulag kemur frá Rauðakrossi Íslands. Námskeiðið fór fram í grunnskólanum 28.-30. apríl. Kennarar á námskeiðinu voru Hildur Sæmundsdóttir ljósmóðir og Eydís Lúðvíksdóttir kennari og þroskaþjálfi.

Nánar...


Þessi vefur er prófaður og vottaður
samkvæmt alþjóðlegum stöðlum.

Erlendar fréttir
Borði

maí

Aðalfundur Setbergsprestakalls fyrir árið 2008

 


Aðalfundur Setbergsprestakalls  fyrir árið 2008 verður haldinn í safnaðarheimili Grundarfjarðarkirkju fimmtudaginn 4. júní n.k. kl. 20.00  Á dagsskrá venjuleg aðalfundarstörf.  Allir velkomnir.

 

Sóknarnefnd - sóknarprestur.

 

Vikublaðið er komið á netið

Það hafðist þessa viku að koma blaðinu út á réttum tíma og er það komið á netið og má lesa það hér
 

Útskrift 23. maí 2009 Fjölbrautaskóli Snæfellinga

Útskriftarnemendur FSN 2009Laugardaginn 23. maí  lauk  Fjölbrautaskóli Snæfellinga  sínu fimmta starfsári og útskrifaði 11 nemendur, með stúdentspróf.  Átta nemendur af  ellefu kláruðu námið  á aðeins þremur árum.  Af  náttúrufræðibraut útskrifuðust  þær Auður Kjartansdóttir, Ingibjörg Stefanía Eiðsdóttir og María Björnsdóttir.  Af  félagsfræðabraut útskrifuðust Diljá Dagbjartsdóttir, Eyjólfur Fannar Sch. Jónsson, Hafdís Lilja Haraldsdóttir, Heiða María Erlingsdóttir, Jón Sindri Emilsson, Kamilla Rún Gísladóttir og Sunna Guðný Högnadóttir. Einn nemandi útskrifaðist með viðbótarnám til stúdentprófs, Jónína Herdís Björnsdóttir. 

Lesa meira...

 

Vorskólinn 2009

vorskóli 2009Í vetur hefur verið gott samstarf á milli leik- og grunnskóla eins og undanfarin ár.  „Brúum bilið“ verkefnið hefur fest sig í sessi og hafa elstu börnin í leikskólanum komið í nokkrar heimsóknir í grunnskólann í vetur. Dagana 14. – 20. maí var svo komið að vorskólanum.  Íslenska fánanum var flaggað í tilefni af komu barnanna en það er ávallt mikil tilhlökkun hjá börnum, foreldrum og starfsfólki skólans þegar komið er að þessum tíma.  Fjölbreytt dagskrá var þessa daga. Nemendur fengu meðal annars að prófa smíðar, textílmennt, heimilisfræði og tölvur, að ógleymdu að fá að takast á við stærðfræðitengd viðfangsefni og stafaverkefni.

Lesa meira...

 
Fleiri greinar...
Facebook MySpace Twitter Digg Delicious Stumbleupon Google Bookmarks RSS Feed 

Vikublaðið er í

sumarfríi til

10. ágúst 2010

Hafið gott sumar!

Ritstjóri

<<  Ágúst 2010  >>
 S  M    M  F  F  L 
  1  2  3  4  5  6  7
  8  91011121314
15161718192021
22232425262728
293031