Eldri fréttir
Ályktun frá stjórn Kennarasambands Íslands

Stjórn Kennarasambands Íslands lýsir yfir fullum stuðningi við baráttu Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna fyrir bættum launakjörum. Stjórnin hvetur Launanefnd sveitarfélaga til að hverfa frá þeirri stefnu sinni að fjötra starfsmenn sveitarfélaga í spennitreyju lágra launa. Það er ólíðandi að grunnlaun starfsmanna sveitarfélaga sem lægst hafa launin skuli ekki hækka í það minnsta til jafns við það sem gerst hefur almennt meðal launafólks á Íslandi að undanförnu.

Stjórn KÍ hvetur sveitarstjórnarmenn til að sýna sanngirni og ganga þegar í stað til samninga við Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna.

Nánar...


Þessi vefur er prófaður og vottaður
samkvæmt alþjóðlegum stöðlum.

Erlendar fréttir
Borði

Júní

Sundlaugin að komast í gagnið að nýju

Sundlaugin í viðgerð
Senn líður að því að sundlaugin komist í gagnið á ný til stendur að hún verði tilbúin þann 17. júní.. Búið er að setja niður nýjan dúk í endursmíðaðan timburkassann og fylla með vatni. Í morgun voru þeir Lárus í Gröf og Ragnar Elbergs að undirbúa fyrir steypu á stétt umhverfis laugina og Gústi ráðsmaður fylgdist að sjálfsögðu með framkvæmdunum.

 

Nýtt tölublað vikublaðsins er komið á netið

23. tbl. Vikublaðsins er nú komið á netið og hægt að lesa það hér.

Minni á að skilafrestur fyrir næsta blað er á MÁNUDAGSKVÖLDIÐ 15. JÚNÍ KL. 22:00 VEGNA ÞJÓÐHÁTÍÐARDAGSINS Á MIÐVIKUDAGINN. Gleðilega þjóðhátíð!

Prentútgáfa blaðsins fer svo í sumarfrí þann 29. júní til 7. ágúst.

Fréttir og auglýsingar er hægt að fá birtar á vefnum þetta tímabil, sjá undir hlekknum Sumarfrí hér fyrir ofan

Með kveðju
Hrafnhildur Jóna

 

Tekið á móti ferðamönnum með stæl

skemmtiferðaskipakomaMilt og stillt veður,sönghópur á planinu við Sögumiðstöðina, ferðamannamarkaður í gömlu Hamrabúðinni, Siggi P að ditta að enn einum  bátnum við Hrannarstíginn, unglingavinnan að snyrta Heilsugæslulóðina og Nonni Víðis og vinnufélagar að mála gamla Kaupfélagið. Allt þetta og miklu fleira tók á mót farþegum á skemmtiferðaskipinu Spirit of Adventure sem röltu um bæinn og upplifðu Grundarfjörð meðan skipið staldraði við frá kl. 8 að morgni til 18 að kveldi þann 4. júní sl. Og þessir skosku ferðamenn sem voru nálægt 300 talsins voru duglegir að versla ýmsan varning á markaðinum sem og í verslunum.

Lesa meira...

 

Uppskeruhátíð Hópleiksins

Uppskeruhátíð Hópleiksins í tippinu var haldin fimmtudaginn 4. júní s.l. á Kaffi 59. Þar voru síðustu 4 ár gerð upp og afhent verðlaun og viðurkenningar. Menn fengu viðurkenningar fyrir ýmskonar afrek eins og að hafa fengið 4 og 2 rétta og einnig fyrir að hafa valdið vonbrigðum öll þessi ár með lélegum árangri. Þá fékk fýlupoki keppninnar einnig verðlaun fyrir mjög mikla fýlu. Nú sigurvegari síðasta keppnistímabils var Frænkan sem skipuð er þeim Svani og Gæja Svans, nú bikarkeppnina unnu þau Gunni og Hadda í Timon og Pumbu. Nú eins og undanfarna vetur höfum við haft aðstöðu í Sögumiðstöðinni og Kaffi 59 hefur séð um að fóðra knattspyrnufýkla á leikjum og kunnum við þessum aðilum hinar bestu þakkir fyrir.
 
Fleiri greinar...
Borði
Facebook MySpace Twitter Digg Delicious Stumbleupon Google Bookmarks RSS Feed 
<<  Júlí 2010  >>
 S  M    M  F  F  L 
      1  2  3
  4  5  6  7  8  910
11121314151617
18192021222324
25262728293031