Það er orðið tímabært að útivistar – og göngufólk hér á Snæfellsnesi, stofni með sér félag. Á kynningarfundi sem haldinn var um miðjan apríl, kynnti ég hugmynd af gönguleið frá Ljósufjöllum vestur að Snæfellsjökli, ca. 80 km leið, sem verður öll stikuð. Við fyrstu sýn væri hægt að skipta gönguleiðinni í þrjá hluta. Austasti hlutinn nær frá Heydal að Vatnaleið, annar hlutinn frá Vatnaleið vestur að Helgrindum fyrir ofan Grundarfjörð og þriðji hlutinn frá Helgrindum vestur að Jökulhálsi. Ég hef hugað talsvert að austasta hluta gönguleiðarinnar, nær Heydalnum, þar sem göngufólk er vant því að byrja göngu sína upp í Ljósufjöllin, nálægt Gerðubergi , Rauðamel og öðrum stöðum í grennd, sem eru þegar að bjóða upp á gistingu og þjónustu fyrir ferðafólk. Þar gætu opnast fleiri gistimöguleikar og aukin þjónusta, ef hægt er að hanna nýja gönguleið eftir háfjallgarðinum.