Eldri fréttir
Sverrir tók þetta og býður víst öllum upp á kók og prins

Mikið skrið var á Sverri Karls og dísinni hans (sem enginn veit hver er) á síðustu metrunum í Hópleiknum, hópurinn vann alla síðustu 4 leikina. Gárungarnir í bænum eru búnir að bjóðast til að búa til festingar á bílinn hjá Sverri svo hann geti runtað um bæinn og sýnt bikarinn, og hafa Siggi Sigurbergs og Guðni Guðna tekið það að sér  en bikarinn er um 70 cm. hár og mikill að umfangi. Sæstjarnan veitti harða keppni fram á síðustu helgi og einnig Meistararnir en þeir töpuðu 2 af síðustu 4 leikjunum.

Nánar...


Þessi vefur er prófaður og vottaður
samkvæmt alþjóðlegum stöðlum.

Erlendar fréttir
Borði

Júní

Íslandsmet í fjallgöngu í miðnætursól

Næturganga um sólstöður á Snæfellsjökul, sem farin var að kvöldi 19. júní sl., tókst afar vel. Gangan var samstarfsverkefni Þjóðgarðsins Snæfellsjökuls og Ferðafélags Íslands. Alls gengu 251 göngugarpar alla leið upp. Veðrið lék við göngufólk og aðstæður voru afar góðar. Að þessu sinni var gengið upp norðvesturhlið Jökulsins, frá bílastæði á Harðabala upp af Eysteinsdal. Margir göngumanna höfðu áður farið á Jökulinn en ekki þessa leið. Toppnum var náð rétt fyrir klukkan hálf tvö en á leiðinni niður voru göngumenn baðaðir miðnætursólinni sem var að koma upp og litaði umhverfið og snjóinn appelsínugulan. Fjöldi þátttakenda í ferðinni er Íslandsmet í fjallgöngu og aldrei hafa fleiri tekið þátt í jöklagöngu sem einn hópur. Myndina tók Guðrún Lára Pálmadóttir
 

Um rekstur og skuldir Grundarfjarðarbæjar þ grein frá bæjarfulltrúum D-listans

Á síðum vikublaðsins hefur undanfarnar vikur verið fjallað nokkuð um rekstur og skuldastöðu bæjarfélagsins.  Fráfarandi bæjarfulltrúi L- lista  Johanna Schalkwyk gerir þetta m.a. að umtalsefni í kveðjugrein sinni í síðustu viku en hún er nú að flytja í Kópavog. 

Þegar rætt er um fjárhag sveitarfélaga og samanburð á milli þeirra er mikilvægt að bera saman sambærilega hluti.   Þannig er rætt um stöðu sveitarsjóðs sem einnig er nefndur A hluti  og svo B- hluti sem eru stofnanir bæjarfélagsins þ.e.a.s höfnin, félagslegar íbúa og íbúðir aldraðra, fráveita og sorp.  Að lokum er þetta tekið saman í heild í samstæðureikning.

Einnig tíðkast að setja fram lykiltölur skipt niður á íbúa. Ef íbúum hefur fækkað eins og raunin hefur orðið hér í Grundarfirði sýnir samanburður á milli ári hækkandi tölur á hvern íbúa, að öðru óbreyttu.

Lesa meira...

 

Síðasta blað fyrir sumafrí er komið á netið

Síðasta tölublað Vikublaðsins fyrir sumarfrí er nú komið á netið og er hægt að lesa það hér

Næsta blað kemur út fimmtudaginn 13. ágúst

 

Pósturinn fluttur

pósturinn flytur
Pósthúsið sem um árabil hefur verið til húsa á fyrstu hæð húsins að Grundargötu 50 hefur nú hafið samstarf við Landsbankann um afgreiðslu og þjónustu við íbúa byggðalagsins og er nú til húsa í útibúi bankans að Grundargötu 38. Flutningurinn átti sér stað frekar skyndilega sl. mánudag og eru starfsmenn bankans nú í aðlögun á nýjum vinnuháttum hjá póstafgreiðsludömunum Dóru og Laugu.

 
Fleiri greinar...
Facebook MySpace Twitter Digg Delicious Stumbleupon Google Bookmarks RSS Feed 

Vikublaðið er í

sumarfríi til

10. ágúst 2010

Hafið gott sumar!

Ritstjóri

<<  Ágúst 2010  >>
 S  M    M  F  F  L 
  1  2  3  4  5  6  7
  8  91011121314
15161718192021
22232425262728
293031