Það var árið 1997 sem fyrsta skipulagða gangan á Klakk um Jónsmessu fór fram. SÃðan hefur ganga farið fram árlega og markmiðið er alltaf það sama að freista þess að sjá óskasteina fljóta um miðnæturbil aðfaranótt Jónsmessu. Hin sÃðari ár hefur gjarnan verið kvöldmessa að Setbergi og sóknarprestar gengið með á Klakk að henni lokinni. Sú var og raunin þriðjudaginn 23. júnà sl. Sr. Aðalsteinn Þorvaldsson söng kvöldmessu i hinu aldna guðshúsi að Setbergi undir yfirskriftinni Helgun og Hollusta og gekk sÃðan með göngufólki ásamt fjölskyldu á Klakk.
Og presturinn gerði gott betur þvà hann og organistinn Þorkell Máni Þorkelsson stungu sér til sunds à Klakkstjörnina og sýnda þar frábæra karlmennsku og hreysti þvà hitastig var lágt à lofti og enn lægra à tjörninni. Hópurinn sem gekk á Klakk var á sjöunda tuginn og hefur ekki áður verið svo fjölmennt à göngunni og greinilegt að fjallamennska er orðin vinsæl Ãþrótt. Þar sem langflestir voru àmjög góðu gönguformi var haldið vel áfram á leiðinni upp og þvà enn töluvert à miðnætti þegar upp var komið þá var gengið um Klakkinn fram á Klakkshaus og sÃðan á Klofasteina og á þann sem er hæsti hluti Klakksins à 380 metra hæð yfir sjávarmáli. Að lokum var gengið niður að Klakkstjörninni og beðið eftir miðnættinu og óskasteinunum sem ekki komu að þessu sinni. Veður var bjart en kalt og  kastaði  örlitlum skúrum fyrir miðnættið.  Myndirnar à göngunni tók Unnur Guðbjartsdóttir.