Eldri fréttir
Vinnuskólinn sumarið 2010 hjá Grundarfjarðarbæ

Vinnuskólinn mun hefja starfsemi miðvikudaginn 2. júní 2010. Vinnuskólinn starfar í tveimur tímabilum, fyrra tímabilið verður frá 2. júní til 5. júlí að báðum dögunum meðtöldum. Seinna tímabilið verður frá 29. júní til 29. júlí að báðum dögum meðtöldum. Þátttakendum verður skipt niður á tímabil eftir skráningu lýkur. Unnið verður mánudaga til fimmtudaga kl. 8:30-12:00.

Klæðnaður skal hæfa veðráttu og eðli vinnunnar. Helstu verkefni verða fegrun umhverfisins og vinna tengd gróðri.

Nánar...


Þessi vefur er prófaður og vottaður
samkvæmt alþjóðlegum stöðlum.

Erlendar fréttir
Borði

júlí

Ruslið reyndist 260 kg

Það var hress hópur ungmenna úr Vinnuskóla Snæfellsbæjar sem tók til hendinni í fjörunni við Malarrif í síðustu viku. Krakkarnir komu í einn dag í vinnu fyrir þjóðgarðinn við að tína rusl úr fjörunni og nágrenni. Ruslið var flokkað í það sem var endurvinnanlegt  og ekki. Aðeins tókst að hreinsa hluta strandarinnar þar sem ruslið reyndist það mikið en ströndin leit ólíkt betur út eftir tiltektina. Í heild tíndi hópurinn 260 kg af rusli.

Myndin er tekin í hádegispásu þegar boðið var upp á grillaðar pilsur.

 

Queen Viktorria í Grundarfjarðarhöfn

Hið risastóra farþegaskip Queen Victoria kom til hafnar í Grundarfirði kl. 8 í morgun og lagðist  við akkeri úti á legunni.  Fljótlega eftir það fóru farþegar skipsins sem flestir eru Bretar og Ameríkanar að sjást á sprangi um götur Grundarfjarðar í góðviðrinu og fjölgaði stöðugt fram til hádegis. Svo virðist sem meirihluti farþeganna hafi kosið að upplifa Grundarfjörð í þessu stoppi en um 2000 farþegar munu vera með skipinu sem kveður kl. 18.00 í dag. Líflegt hefur verið í verslunum og á markaði handverksfólk sem starfræktur í Gömlu Grund  þegar skemmtiferðaskip eru í höfn. Þetta er 4 skipið af þeim 14 sem heimsækja Grundarfjörð í sumar.

Síðast uppfært (Þriðjudagur, 14 Júlí 2009 12:18)

 

Aldrei fleiri á Klakk á Jónsmessu

Gengið á KlakkÞað var árið 1997 sem fyrsta skipulagða gangan á Klakk um Jónsmessu fór fram. Síðan hefur ganga farið fram árlega og markmiðið er alltaf það sama að freista þess að sjá óskasteina fljóta um miðnæturbil aðfaranótt Jónsmessu. Hin síðari ár hefur gjarnan verið kvöldmessa að Setbergi og sóknarprestar gengið með á Klakk að henni lokinni. Sú var og raunin þriðjudaginn 23. júní sl. Sr. Aðalsteinn Þorvaldsson söng kvöldmessu i hinu aldna guðshúsi að Setbergi undir yfirskriftinni Helgun og Hollusta og gekk síðan með göngufólki ásamt fjölskyldu á Klakk.

Lesa meira...

 

Vegleg gjöf frá Verkalýðsfélagi

Styrkur frá StjörnunniSíðast liðin föstudag þann. 26. júní, boðaði Þórunn Kristinsdóttir fyrrverandi formaður Verkalýðsfélagsins Stjörnunnar í Grundarfirðir stjórn Dvalarheimilisins Fellaskjóls á sinn fund í húsnæði félagsins að Borgarbraut.  Tilefnið var ærið því það var komið að því að efna fundarsamþykkt aðalfundar Stjörnunnar frá árinu 2007 um fjárstyrk til Fellaskjóls. Upphaflega var samþykktin fólgin í því að styrkja Dvalarheimilið í fimm ár um eina milljón króna árlega en þeirri samþykkt var breytt áður en kom til sameiningar verkalýðsfélaganna á Snæfellsnesi og var styrkurinn nú greiddur út í einu lagi krónur 5 milljónir. 

Lesa meira...

 
Facebook MySpace Twitter Digg Delicious Stumbleupon Google Bookmarks RSS Feed 

Vikublaðið er í

sumarfríi til

10. ágúst 2010

Hafið gott sumar!

Ritstjóri

<<  Ágúst 2010  >>
 S  M    M  F  F  L 
  1  2  3  4  5  6  7
  8  91011121314
15161718192021
22232425262728
293031