Eldri fréttir
Sumarferð Félags fyrrverandi alþingismanna um Snæfellsnes

Árleg sumarferð Félags fyrrverandi alþingismanna var farin um um Snæfellsnes 24. júlí sl. Félagið var stofnað 1986 og er tilgangur þess fyrst og fremst að vera vettvangur fyrrverandi alþingismanna til að rifja upp gömul kynni og ræða landsins gagn og nauðsynjar. Má segja að þau samskipti öll séu mun vinsamlegri en sú mynd sem gjarnan birtist af Alþingi í fjölmiðlum. Aðalsamkomur félagsins eru árlegur aðalfundur, árshátíð og svo sumarferðir. Ánægjulegt er að eftirlifandi makar fyrrverandi alþingismanna koma líka til að gleðjast með á árshátíðum og í hinum vinsælu sumarferðum. Félagið hefur einnig samband við systurfélög á Norðurlöndum og skiptist á heimsóknum við þau.

Nánar...


Þessi vefur er prófaður og vottaður
samkvæmt alþjóðlegum stöðlum.

Erlendar fréttir
Borði

apríl

Fundur um nýja gönguleið um Snæfellsnesfjallgarð

Fundur v/ gönguleiðar SnæfellsnesfjallgarðsÞriðjudaginn s.l. var haldinn kynningarfundur í Sögumiðstöðinni í Grundarfirði. Gunnar Njálsson kynnti  hugmyndir um gerð nýrrar gönguleiðar eftir Snæfellsnesfjallgarði, frá Ljósufjöllum að Snæfellsjökli. Páll Ásgeir Ásgeirsson kom fyrir hönd Ferðafélags Íslands, kynnti samtökin og starf þeirra. Vel var mætt á fundinn af öllu Snæfellsnesi og einhugur var í fólki. Sammæltust fundarmenn um að stofnaður yrði áhugahópur um þetta verkefni og fleiri af sama meiði, Ferðafélag Snæfellinga, sem yrði deild undir Ferðafélagi Íslands. Boðað verður til stofnfundar innan skamms.
Jónas V. Guðmundsson, markaðsfulltrúi Grundarfjarðarbæjar

 

Tómstundamiðstöð - grein eftir Inga Hans Jónsson

Á skemmtilegum íbúafundi sem Kvarnir stóð fyrir í samvinnu við Grundarfjarðarbæ, um „Hamingju í heimabyggð“  kom fram sterk ósk um einhverskonar „samfélagsmiðstöð“. Hugmyndin byggir á því að koma upp aðstöðu fyrir fjölbreytt tómstundastarf. Í framhaldinu hef ég skoðað hvaða möguleikar væru raunverulegir í þeim efnum. Niðurstaðan af þeim vangaveltum er sú að vert sé að gera tilraun. Tilraun sem átt getur möguleika mundi fela í sér að stofnað yrði tómstundafélag einstaklinga og félagasamtaka þar sem hver meðlimur greiddi félagsgjald mánaðarlega. Upphæð félagsgjalds yrði við það miðuð að geta staðið undir leigu og rekstri á hentugu húsnæði. Slíkt húsnæði er til staðar þar sem verslunin Hamrar var til húsa. Það húsnæði gefur marga möguleika sökum fjölbreytni þeirra rýma sem þar eru. Þar má hugsa sér fjölbreyttar vinnustofur, gallerí og samkomusal. Þarna má gera ráð fyrir að hafa reglulegan opnunartíma sem félagar skiptu með sér, þar sem mjög fjölbreytt starfsemi yrði víða í húsinu. Svo má hugsa sér að hópar eða einstaklingar geti verið með afmarkaða starfsemi utan þessa tíma.

Lesa meira...

 

Vikublaðið komið á netið

og má nálgast vefútgáfu blaðsins hér
 

Áminnig!

Áminning vika 16
 

Kynning á nýrri gönguleið eftir Snæfellsnesfjallgarði

Það var í febrúarmánuði sem ég skrifaði grein um hugmynd mína og margra annarra á Snæfellsnesi um möguleika á að hanna nýja gönguleið eftir Snæfellsnesfjallgarðinum, frá Ljósufjöllum og vestur að Snæfellsjökli. Síðan þá, hef ég fengið margar fyrirspurnir frá áhugasömu fólki um þetta málefni og greinilegt er, að margir sem stunda útivist og ekki síst þeir sem stunda ferðaþjónustu á svæðinu, vilja fylgjast með og huga að því, að bæta þessum þætti inn í ferðaþjónustu sína á styrkjandi hátt. Þess vegna hef ég ákveðið, ásamt fleirum áhugasömum aðilum, m.a. Ferðafélagi Íslands og markaðsstjóra Grundarfjarðarbæjar, að halda kynningarfund um þetta málefni í Sögumiðstöðinni í Grundarfirði, þann 14. apríl. kl. 20. Og eru áhugasamir hvattir til að mæta.

Kveðja úr Grundarfirði. Gunnar Njálsson

 
Fleiri greinar...
Borði
Facebook MySpace Twitter Digg Delicious Stumbleupon Google Bookmarks RSS Feed 
<<  Júlí 2010  >>
 S  M    M  F  F  L 
      1  2  3
  4  5  6  7  8  910
11121314151617
18192021222324
25262728293031