Borði

apríl

Vikublaðið komið á netið

Páskablað Vikublaðsins er komið á netið og er hér

páskakveðja

 

Páskar á Vesturlandi

Á Vesturlandi verður fjölbreytt dagskrá alla páskana og sameinast ferðaþjónar og sveitarfélög um að bjóða gestum í heimsókn á landshlutann.

Bubbi Morthens, Eivör Pálsdóttir, Halldór Laxness Barbie, Leifur heppni  og Laddi verða á staðnum boðið verður upp á kræklingatínslu, hákarlaupplifun, jöklaferðir, golfkennslu, gúmbátaferðir um Hvalfjörð og ekki má nú gleyma Sjávarsafninu sem margir vita hreinlega ekki um.

Ferðaþjónar bjóða páskatilboð á mat og gistingu og hin nýja og glæsilega  upplýsingamiðstöð Vesturlands í Borgarnesi verður opin alla páskana. Á heimasíðunni www.vesturland.is má sjá allt um Páska á Vesturlandi
 

Gabríel Arthúr Pétursson í besta liði forritunarkeppni framhaldsskólanna

Enn ein fréttin af ungum Grundfirðingi sem skarar fram úr. Við bæjarbúar getum svo sannarlega verið stoltir. Þann 20. – 21. mars síðastliðinn var haldin Forritunarkeppni framhaldsskólanna í Háskólanum í Reykjavík. Keppnin er fyrir alla nemendur í framhaldsskólum sem hafa áhuga á hönnun, forritun og tölvum. Metaðsókn var í keppnina þetta árið og tóku 30 lið þátt. Verkefnin voru annars vegar mörg lítil verkefni til að kanna grunnkunnáttu í forritun og hins vegar völdu keppendur eitt verkefni af þremur þar sem að sköpunargleðin fékk að njóta sín. Veitt voru verðlaun fyrir besta lið hverrar deildar, frumlegustu lausnina og besta lógóið. En keppninni er skipt í þrjár deildir Alpha deild, Beta deild og Delta deild. Grundfirðingurinn Gabríel Arthúr Pétursson tók þátt í keppninni og var í liðinu Hash Collision ásamt nemendum úr Fjölbrautaskóla Suðurlands þeim Jónatan Nilson og Sigurði Vilhelmsyni. En liðið þeirra var valið besta lið Alpha deildarinnar í keppninni, en Alfa deildin er úrvalsdeild forritunarkeppninnar, ætluð þeim sem hafa stundað forritun umfram það sem kennt er í framhaldsskólum, unnið við forritun eða stundað hana sem sérstakt áhugamál. Við óskum Gabríel og félögum hans til hamingju með árangurinn.

 

 

Útskrift hjá Grunnmenntaskólanum.

Grunnmenntaskólinn 2009
Grunnmenntaskólinn útskrifaði 13 nemdur eftir 300 kennslustunda nám í Fjölbrautarskóla Snæfellinga sl. laugardag.  Námið sem skipulagt er af Símenntunarmiðstöð Vesturlands hófst í haust og er þetta í þriðja skipti sem slíkt námskeið er haldið í FSN. Umsjón með kennslunni var í höndum Barböru Fleckinger kennar við FSN.  Námið er sérstaklega sniðið að þeim einstaklingum sem hafa litla undirstöðumenntun og nýtist vel sem undirbúningur fyrir áframhaldandi nám.  Í ræðu Ingu Dóru Halldórsdóttur forstöðmanns Símenntunarmiðstöðvar Vesturlands kom fram að hún hefur fullan hug á halda slíkum námskeiðum áfram á næsta skólaári. Við útskriftina söng Sigurður Höskuldsson tónlistarmaður úr Snæfellsbæ nokkur frumsamin lög við eigin gítarundirleik en eftir athöfnina var öllum viðstöddum boðið til kaffisamsætis í matsal Fjölbrautarskólans í boði Símenntunarmiðstöðvarinnar.

GK

 

Vikublaðið komið á netið

Blað vikunnar er komið á netið og má nálgast það hér.

Athygli er vakin á því að í næstu viku þarf að skila inn efni í blaðið fyr en venjulega,

eða fyrir kl. 22:00 á mánudagskvöld, vegna páskahelgarinnar.

 
Fleiri greinar...
Borði
Facebook MySpace Twitter Digg Delicious Stumbleupon Google Bookmarks RSS Feed 
<<  Júlí 2010  >>
 S  M    M  F  F  L 
      1  2  3
  4  5  6  7  8  910
11121314151617
18192021222324
25262728293031