Eldri fréttir
Þrjú lið Snæfellsnes í úrslit !

Stelpurnar í 4. flokki kvenna gulltryggðu ferð sína í úrslitakeppni íslandsmótsins í knattspyrnu 7 manna liða  með sigri á Stjörnunni 8-4 á Grundarfjarðarvelli á þriðjudag. Stelpurnar höfnuðu í 2. sæti síns riðils með 36 mörk í plús og töpuðu aðeins einum leik. Úrslitakeppnin fer fram á Víkingsvellinum í Reykjavík 21. og 22. ágúst nk.

Nánar...


Þessi vefur er prófaður og vottaður
samkvæmt alþjóðlegum stöðlum.

Erlendar fréttir
Borði

Svæðisútvarp Vesturlands og Vestfjarða

Gísli Einarsson fréttamaðurÞriðjudaginn 5. maí n.k. hefjast útsendingar Svæðisútvarps Vesturlands og Vestfjarða á vegum Ríkisútvarpsins. Um langt skeið hefur verið haldið úti öflugum
svæðisútsendingum á Norðurlandi, Austurlandi og Vestfjörðum. Ítrekað hafa komið fram óskir frá íbúum Vesturlands að njóta sömu þjónustu. Nú hefur verið ákveðið að verða við þessum óskum og koma á sameiginlegum svæðisútsendingum fyrir hluta Vesturlands og Vestfirði. Í fyrsta áfanga ná útsendingarnar yfir norðanvert Snæfellsnes, þar með talið þéttbýlisstaðina Rif, Hellissand, Ólafsvík, Grundarfjörð og Stykkishólm, og alla Dalasýslu. Í framhaldinu verður hugað að því að breyta útvarpssendum þannig að útsendingin náist á sunnanverðu Snæfellsnesi og í Borgarfirði. Með þessu móti er hægt að efla þjónustuna án þess að auka mikið kostnaðinn. Nú þegar er mikið samstarf milli fréttamanna RÚV á Vestfjörðum og Vesturlandi og því ætti fyrirhuguð breyting að ganga vel.

Svæðisútsendingarnar yfirtaka útsendingu Rásar 2 frá klukkan 17.30 - 18.00, þriðjudaga til föstudaga. Þriðjudaginn 5. maí hefst útsendingin hinsvegar strax að loknum útvarpsfréttum klukkan 17.00 í tilefni dagsins. Útsendingar verða til skiptist úr hljóðverum RÚV í Borgarnesi og á Ísafirði en alla daga verður sent út efni af öllu svæðinu. Í Svæðisútvarpi Vesturlands og Vestfjarða verða sagðar fréttir, viðtöl og efni um mannlíf á Vesturlandi og Vestfjörðum. Stefnt er að því að í framtíðinni verði fréttaflutningur og dagskrárgerð fyrir landsrásirnar efldur enn frekar.

Svæðisútvarp Vesturlands og Vestfjarða er á vegum Fréttastofu RÚV. Starfsmenn eru Gísli Einarsson fréttamaður á Vesturlandi, Guðrún Sigurðardóttir, fréttamaður á Ísafirði og Jóhannes Jónsson tæknimaður. Þá vinnur Guðmundur Gunnarsson, fréttamaður, við Svæðisútvarpið í sumar. Ennfremur er gert ráð fyrir að fleiri starfsmenn Fréttastofu RÚV komi að útsendingunum eftir þörfum. Auglýsingastjóri er Hafdís Erla Bogadóttir.

Fréttastjóri RÚV er Óðinn Jónsson.

Helstu símanúmer:
Gísli Einarsson: 899 4098
Guðrún Sigurðardóttir : 456 4177
Auglýsingasími: 471 2330

 
Borði
Facebook MySpace Twitter Digg Delicious Stumbleupon Google Bookmarks RSS Feed 
<<  Júlí 2010  >>
 S  M    M  F  F  L 
      1  2  3
  4  5  6  7  8  910
11121314151617
18192021222324
25262728293031