Borði

Tómstundamiðstöð - grein eftir Inga Hans Jónsson

Á skemmtilegum íbúafundi sem Kvarnir stóð fyrir í samvinnu við Grundarfjarðarbæ, um „Hamingju í heimabyggð“  kom fram sterk ósk um einhverskonar „samfélagsmiðstöð“. Hugmyndin byggir á því að koma upp aðstöðu fyrir fjölbreytt tómstundastarf. Í framhaldinu hef ég skoðað hvaða möguleikar væru raunverulegir í þeim efnum. Niðurstaðan af þeim vangaveltum er sú að vert sé að gera tilraun. Tilraun sem átt getur möguleika mundi fela í sér að stofnað yrði tómstundafélag einstaklinga og félagasamtaka þar sem hver meðlimur greiddi félagsgjald mánaðarlega. Upphæð félagsgjalds yrði við það miðuð að geta staðið undir leigu og rekstri á hentugu húsnæði. Slíkt húsnæði er til staðar þar sem verslunin Hamrar var til húsa. Það húsnæði gefur marga möguleika sökum fjölbreytni þeirra rýma sem þar eru. Þar má hugsa sér fjölbreyttar vinnustofur, gallerí og samkomusal. Þarna má gera ráð fyrir að hafa reglulegan opnunartíma sem félagar skiptu með sér, þar sem mjög fjölbreytt starfsemi yrði víða í húsinu. Svo má hugsa sér að hópar eða einstaklingar geti verið með afmarkaða starfsemi utan þessa tíma.

En til þess að þetta sé mögulegt þarf fólk að finna hjá sér þörf til að skapa samfélag um verkefnið.  Aðilar leggi með sér búnað eftir getu. Víða liggja t.d. föndurverkfæri sem lítt eða ekki eru notuð vegna skorts á aðstöðu (t.d. allt sem þarf til smíðaverkstæðis á undirritaður og er tilbúinn að leggja fram.) Þá þarf að leita eftir húsgögnum, borðbúnaði, töflum og spilum o.fl. sem þarf til starfseminnar og hægt væri að fá fyrir lítið. Llíklega er hægt að fá einhverja styrki til verkefna á borð við námskeið og atburði sem auka gæði þess samfélags sem við lifum í.

Þá er loks nauðsynlegt að til sé vilji til þess að gera eitthvað sjálfur en bíða ekki eftir því að einhverjir aðrir geri það. Þrengingarnar í þjóðfélaginu kalla á aukna virkni okkar sjálfra og að við sitjum ekki og bíðum. Eða eins og einn þáttakandinn á íbúafundinum sagði. „Verum þátttakendur en ekki bara farþegar“.

Og að lokum þetta: Með þessu framtaki yrði sköpuð aðstaða fyrir fólk til að hittast bæði formlega og óformlega. Enginn þyrfti að einangrast með tómstundir sínar og til yrði samfélag sem yki mjög á lífsgæði okkar allra og væri mikill menningarauki fyrir samfélagið.

Ég lýsi mig viljugan til að ýta þessu starfi af stað sýni 40 – 50 manns því áhuga. Áhugasamir geta sent tölvupóst á ingihans@simnet.is eða hringt í síma 893 7714.

Hér er tækifæri til að vinna gagn ef fólk nennir.

Kveðja,

Ingi Hans

 

 
Borði
Facebook MySpace Twitter Digg Delicious Stumbleupon Google Bookmarks RSS Feed 
<<  Júlí 2010  >>
 S  M    M  F  F  L 
      1  2  3
  4  5  6  7  8  910
11121314151617
18192021222324
25262728293031