Eldri fréttir
Garðyrkjufélag Snæfellsness stofnað

S.l. miðvikudag var haldinn stofnfundur Garðyrkjufélags Snæfellsness á Ráðhúsloftinu í Stykkishólmi.  Formaður var kosinn Anna Melsteð, meðstjórnendur Guðrún Hauksdóttir, Magðalena Hinriksdóttir, Kolbrún Jónsdóttir og Sesselja Pálsdóttir.  Vilhjálmur Lúðvíksson formaður Garðyrkjufélags Íslands kynnti félagið og að því loknu kom Jón Guðmundsson garðyrkjumaður og fræddi fundargesti ítarlega um það hvernig koma mætti ávaxtatrjám til að vaxa og bera ávexti utandyra. 

Nánar...


Þessi vefur er prófaður og vottaður
samkvæmt alþjóðlegum stöðlum.

Erlendar fréttir
Borði

apríl

Í vikublaðinu þessa viku

Vikublaðið er komið á netið og má þar m.a. finna grein um útsendingar svæðisútvarps Vesturland og Vestfjarða, myndir frá fjölbreyttri dagskrá sumardagsins fyrsta, tilkynningar frá Grundarfjarðarbæ o.m.fl. Pdf útgáfu blaðsins er hægt að nálgast hér.

 

Fjölbreytt dagsskrá á Sumardaginn fyrsta

Eftir langan og viðburðaríkan vetur einkum á sviði efnahagsmála heilsuðu Grundfirðingar sumri með óvenju viðburðaríkri dagskrá sem stóð frá því árla dags og fram eftir degi. Veðrið var sumarlegt framan af degi en þegar liða tók á dag var ljóst að Vetur konungur var ekki alveg tilbúinn að sleppa tökum sínum og að kvöldi fyrsta sumardags var komið hríðaveður. En líkt og segir í orðtakinu þá birtir öll él upp um síðir og sumarið hefur nú að líkindum hafið innreið sína fyrir alvöru.  Myndbrot frá nokkrum af atburðum Sumardagsins fyrsta fylgja hér með. 

Tómas og Guðjón

Síðast uppfært (Miðvikudagur, 06 Maí 2009 06:38)

Lesa meira...

 

Svæðisútvarp Vesturlands og Vestfjarða

Gísli Einarsson fréttamaðurÞriðjudaginn 5. maí n.k. hefjast útsendingar Svæðisútvarps Vesturlands og Vestfjarða á vegum Ríkisútvarpsins. Um langt skeið hefur verið haldið úti öflugum
svæðisútsendingum á Norðurlandi, Austurlandi og Vestfjörðum. Ítrekað hafa komið fram óskir frá íbúum Vesturlands að njóta sömu þjónustu. Nú hefur verið ákveðið að verða við þessum óskum og koma á sameiginlegum svæðisútsendingum fyrir hluta Vesturlands og Vestfirði. Í fyrsta áfanga ná útsendingarnar yfir norðanvert Snæfellsnes, þar með talið þéttbýlisstaðina Rif, Hellissand, Ólafsvík, Grundarfjörð og Stykkishólm, og alla Dalasýslu. Í framhaldinu verður hugað að því að breyta útvarpssendum þannig að útsendingin náist á sunnanverðu Snæfellsnesi og í Borgarfirði. Með þessu móti er hægt að efla þjónustuna án þess að auka mikið kostnaðinn. Nú þegar er mikið samstarf milli fréttamanna RÚV á Vestfjörðum og Vesturlandi og því ætti fyrirhuguð breyting að ganga vel.

Lesa meira...

 

Samantekt íbúafunda á Snæfellsnesi

 

Frá fyrsta íbúafundi Kvarna í Snæfellsbæ

Á íbúafundi í Snæfellsbæ , var fólki efst í huga að nú sé mikilvægt að auka umræðu, samkennd og samstöðu.  Tæplega 50 manns á breiðum aldri tóku þátt í fundinum og fögnuðu mjög framtakinu.  Þátttakendur töldu að nýta þurfi kosti átthaganna og auka þekkingu heimamanna á eigin samfélagi, umhverfi, sögu og þjónustu.  Bundnar eru vonir við nýja átthagastofu.  Ýmis tækifæri felist í ferðaþjónustu, t.d. með fjölbreyttri gistiaðstöðu og afþreyingu og jafnvel einfaldir hlutir eins og merkingar geti haft mikið að segja. 

Þegar horft var til Snæfellsness alls vildu þátttakendur sjá aukna samvinnu, samhug og samkennd.  Sérstaklega var lögð áhersla á samstarf í atvinnumálum, ferðaþjónustu og menningarmálum.  Aukin samvinna muni leiða til sameiningar og sameiginlega leggi svæðið áherslu á sjálfbæra þróun.   Bent var á að Green Globe verkefnið sé vannýtt tækifæri og að þar mætti virkja íbúa betur.  Æskilegt væri að ferðaþjónustuaðilar væru duglegir að vísa hver á annan.  Fram komu hugmyndir um útilistaverk um allt Snæfellsnes þar sem þemað gæti t.d. verið þorskurinn.  Hugsanlega mætti koma upp sameiginlegum innri vef fyrir Snæfellsnes.  „Verum jákvæð og dugleg“, sagði yngri kynslóðin sem einnig vildi meiri samgang milli skólanna á Nesinu.  Kjarninn í skilaboðum fundarins var sá að ef íbúar á Snæfellsnesi þekkja vel sitt svæði og eru stoltir af því, þá skapi það grunn að nýsköpun og laði að gesti.  Þannig megi stuðla að „hamingju í heimabyggð“. 

Fundurinn var sá fyrsti af fjórum sem Kvarnir, áhugahópur um framtíðina á Snæfellsnesi standa fyrir í samstarfi við sveitarfélögin.  Yfirskrift fundanna er „Snæfellsnes á tímamótum – hamingja í heimabyggð“.  Að fundunum loknum verður unnið frekar úr niðurstöðum. 

 

Frá íbúafundinum í Breiðabliki

Aukin samvinna og samstaða, sterkir skólar, netvæðing og öflugt atvinnulíf eru brýnustu hagsmunamál dreifbýlis á Snæfellsnesi, að mati þeirra sem sóttu íbúafund á Breiðabliki  fimmtudaginn 26. mars síðastliðinn.

 

Lesa meira...

 

Gleðilegt sumar og nýtt vikublað komið á netið

Óskum ykkur öllum gleðilegs sumars!

Vikublaðið Þeyr í viku 17 er komið út á netið og má nálgast pdf útgáfu þess hér.

 
Fleiri greinar...
Facebook MySpace Twitter Digg Delicious Stumbleupon Google Bookmarks RSS Feed 

Vikublaðið er í

sumarfríi til

10. ágúst 2010

Hafið gott sumar!

Ritstjóri

<<  Ágúst 2010  >>
 S  M    M  F  F  L 
  1  2  3  4  5  6  7
  8  91011121314
15161718192021
22232425262728
293031