Eldri fréttir
Ályktun frá stjórn Kennarasambands Íslands

Stjórn Kennarasambands Íslands lýsir yfir fullum stuðningi við baráttu Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna fyrir bættum launakjörum. Stjórnin hvetur Launanefnd sveitarfélaga til að hverfa frá þeirri stefnu sinni að fjötra starfsmenn sveitarfélaga í spennitreyju lágra launa. Það er ólíðandi að grunnlaun starfsmanna sveitarfélaga sem lægst hafa launin skuli ekki hækka í það minnsta til jafns við það sem gerst hefur almennt meðal launafólks á Íslandi að undanförnu.

Stjórn KÍ hvetur sveitarstjórnarmenn til að sýna sanngirni og ganga þegar í stað til samninga við Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna.

Nánar...


Þessi vefur er prófaður og vottaður
samkvæmt alþjóðlegum stöðlum.

Erlendar fréttir
Borði

Ágúst

Danskir dagar í Stykkishólmi um helgina

Um helgina fer fram fjölskylduhátíðin Danskir dagar í Stykkishólmi á Snæfellsnesi. Hátíðin, sem nú er haldin í 16. skiptið, verður með glæsilegri og fjölbreyttri dagskrá þar sem öll fjölskyldan getur fundið eitthvað við sitt hæfi. Spáð er bongóblíðu og ætti því enginn að vera svikinn af því að skella sér í Hólminn um helgina og vera “ligeglad” segir í fréttatilkynningu frá framkvæmdastjóra hátíðarinnar.  Ekki er annað að sjá en dagskráin sé fjölbreytt og líkt og hjá okkur Grundfirðingum byrjar hátíðin í raun í dag því heimamenn  skreyta bæinn sinn með jólaljósum, blöðrum fánum og öllu því sem þeir telja að auki vinningslíkur þeirra hverfis í hinni alræmdu Hverfagrillskeppni. danskir dagar í StykkishólmiStórsöngkonan Elísa Vilbergsdóttir sópran ásamt þeim Andreas Baumeister bass-barítón og Gerrit Schuil pianista stytta biðina eftir Dönskum dögum með alkunnum laglínum á tónleikum í Stykkishólmskirkju undir yfirskriftinni „Klassík og klassískt“.
Á föstudeginum er svo hægt að byrja daginn á ævintýrasiglingu um Breiðafjörð, fara í paintball fram að grillveislunum, sem haldnar eru í öllum hverfum bæjarins.

Lesa meira...

 

Meira frá Unglingalandsmótinu

Þau klaufalegu mistök urðu í greininni um unglingalandsmótið í síðasta blaði að við gleymdum að þakka Hlyn Bæringssyni körfuboltaþjálfara fyrir sitt framlag á mótinu.

Hann stóð sína plikt í íþróttahúsinu alla helgina, allt upp í 12 klst á dag.

Hann og hans lið stóðu sig með miklum ágætum og komu heim með 1 gull og 2 silfur.

Við biðjum Hlyn velvirðingar á þessum mistökum.

 

Að lokum viljum við minna fólk á að skila sem fyrst keppnisbúningum ef það er ekki búið að því nú þegar. Og ef einhver veit eitthvað um skótöskuna frá Símanum með svörtum og ljósbláum Nike fótboltaskóm eða svarta ruslapokann með rúmfötunum í, sem tapaðist á leiðinni heim, þá endilega látið okkur vita.

 

Með landsmótskveðjum

Monika 862-1765, Eygló 863-0185 og Kristín

 

HSH krakkar stóðu sig vel á unglingalandsmóti


HSH átti 95 keppendur á 12. unglingalandsmóti UMFÍ sem haldið var á Sauðarkrók um verslunarmannahelgina. Af þessum 95 keppendum þá voru 70 skráningar í fótbolta, 39 í körfubolta, 20 í frjálsum, 3 í sundi, 2 í mótorcross, ein í hestaíþróttum og einn í skák.. Ekki er annað hægt að segja en að okkar krökkum hafi vegnað vel á mótinu og koma helstu úrslit hér fyrir neðan.

Lesa meira...

 

Nýr starfsmaður hjá Símenntunarmiðstöðinni með aðsetur á Snæfellsnesi

Kristín Björg Árnadóttir hefur verið ráðin í 30% starfshlutfall hjá Símenntunarmiðstöðinni á Vesturlandi frá og með 1. ágúst, en hún hefur aðsetur í Átthagastofu í Snæfellsbæ.  Kristín mun hafa umsjón með fjarnámi og verður tengill stofnunarinnar við fjarnámsverin á Vesturlandi, fjarnema og þá háskóla sem þeir stunda nám við. Auk þessa mun hún sinna öðrum tilfallandi verkefnum á Snæfellsnesi.

 Með þessari ráðningu er Símenntunarmiðstöðin að vinna að því að styrkja tengslin við svæðið enn frekar enda hafa verkefnin og sókn í námskeið á Snæfellsnesi aukist jafnt og þétt.

Kristín er með vinnusíma 433-6929 og netfang kristin@simenntun.is

 

Nýtt skólaár að hefjast - frá Heimili og skóla

Nú um miðjan ágúst fara foreldrar gjarnan að huga að undirbúningi fyrir skólann. Skólatöskur eru teknar fram og foreldrar huga að námsaðstöðu barnanna og innkaupalistum. Gott er að athuga hvort hægt er að nota skóladótið frá því í fyrra því með smá upplyftingu má oft nýta það sem til er og óþarfi að kaupa allt nýtt. Það er að mörgu að hyggja og börnin þurfa svo sannarlega á foreldrum sínum að halda þegar skólinn byrjar. Nú eru þau árinu eldri og ný verkefni blasa við, kannski nýr skóli, nýr kennari eða nýr bekkur. Breytingar verða einnig hjá mörgum foreldrum og sumir huga á nám eða eru að byrja í nýrri vinnu sjálfir.

Lesa meira...

 
Fleiri greinar...
Borði
Facebook MySpace Twitter Digg Delicious Stumbleupon Google Bookmarks RSS Feed 
<<  September 2010  >>
 S  M    M  F  F  L 
     1  2  3  4
  5  6  7  8  91011
12131415161718
19202122232425
2627282930