Eldri fréttir
Ályktun frá stjórn Kennarasambands Íslands

Stjórn Kennarasambands Íslands lýsir yfir fullum stuðningi við baráttu Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna fyrir bættum launakjörum. Stjórnin hvetur Launanefnd sveitarfélaga til að hverfa frá þeirri stefnu sinni að fjötra starfsmenn sveitarfélaga í spennitreyju lágra launa. Það er ólíðandi að grunnlaun starfsmanna sveitarfélaga sem lægst hafa launin skuli ekki hækka í það minnsta til jafns við það sem gerst hefur almennt meðal launafólks á Íslandi að undanförnu.

Stjórn KÍ hvetur sveitarstjórnarmenn til að sýna sanngirni og ganga þegar í stað til samninga við Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna.

Nánar...


Þessi vefur er prófaður og vottaður
samkvæmt alþjóðlegum stöðlum.

Erlendar fréttir
Borði

Ágúst

Breyttur tími skrifstofu sýslumanns

Skrifstofur sýslumanns í Ólafsvík og Grundarfirði verða með breyttan opnunartíma frá 7. september 2009.

Framvegis verður opið frá 10:00 – 14:00.

Sýslumaður Snæfellinga

Ólafur K. Ólafsson

 

Skrifstofuskólinn á Snæfellsnesi

Símenntunarmiðstöð Vesturlands og Fræðslumiðstöð Atvinnulífsins kynna nýja námsleið á Snæfellsnesi

Skrifstofuskólinn er hagnýt námsbraut sem býr þátttakendur undir ýmis skrifstofustörf. Námsbrautin byggir á námskrá frá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins og gefur 18 einingar á framhaldsskólastigi að loknum 240 kennslustundum. Námsleiðinn er ætluð fólki á vinnumarkaði sem er 20 ára eða eldra og hefur stutta formlega skólagöngu að baki. Markmiðið með Skrifstofuskólanum er að auka sjálfstraust námsmanna til að takast á við almenn skrifstofustörf og auka starfshæfni sína og sjálfstraust.
Skrifstofuskólinn verður kenndur í Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði. Kennt verður á mánudögum og miðvikudögum frá kl. 18:00 til 21:30. Fyrsti kennsludagur verður 21.september og útskrift er 27.mars 2010.

Lesa meira...

 

Vikublaðið komið á Facebook

Vikublaðið er með eindæmum tæknivætt blað og vefsíða og er nú komin á Facebook þannig að allir þeir sem áhuga hafa á að fylgjast með nýjustu fréttum frá Grundarfirði og eru meðlimir Facebook geta nú gerst vinir blaðsins.
 

Stórbruni í Grundarfirði

Stórbruni í GrundarfirðiÞað lagði kolsvartan reyk yfir bæinn að sögn Gunnars Kristjánssonar fréttaritara. Ljóst er að um stórtjón er að ræða vegna stórbrunans í gærkvöldi í gamla fiskmarkaðnumj við Sólvelli. Kalla þurfti allt tiltækt lið Slökkviliðanna á Snæfellsnesi því aðstæður voru erfiðar, bæði var hvasst og norðanátt og einnig voru húsin erfið viðureignar með þrjár samliggjandi byggingar , þröng herbergi, og varð að vinna slökkvistarf utanfrá. Freon- og gaskútar voru í húsunum og var því einnig hætta á sprenginum.

Lesa meira...

 

Meistaraflokkur UMFG í Knattspyrnu

Síðastliðið sumar hófst vinna við að endurvekja meistaraflokk UMFG í knattspyrnu af löngum dvala en í Grundarfirði hefur ekki verið boðið upp á meistaraflokk síðan 1987.   Eftir að Snæfell í Stykkishólmi hætti í vor, þá var enginn möguleiki fyrir menn að leggja stund á alvöru fótbolta, nema sækja æfingar hjá utandeildarliðum fyrir sunnan.  Víkingur Ólafsvík spilar á allt öðru og hærra plani, og er meiningin að UMFG geti í framtíðinni stutt við það góða starf sem unnið er í Ólafsvík.  Leikmenn hefðu þá tækifæri til að spila alvöru leiki í neðrideildum í stað þess að hætta iðkuninni í kringum bílprófsaldurinn.

Lesa meira...

 
Fleiri greinar...
Borði
Facebook MySpace Twitter Digg Delicious Stumbleupon Google Bookmarks RSS Feed 
<<  Júlí 2010  >>
 S  M    M  F  F  L 
      1  2  3
  4  5  6  7  8  910
11121314151617
18192021222324
25262728293031