Eldri fréttir
Sumarferð Félags fyrrverandi alþingismanna um Snæfellsnes

Árleg sumarferð Félags fyrrverandi alþingismanna var farin um um Snæfellsnes 24. júlí sl. Félagið var stofnað 1986 og er tilgangur þess fyrst og fremst að vera vettvangur fyrrverandi alþingismanna til að rifja upp gömul kynni og ræða landsins gagn og nauðsynjar. Má segja að þau samskipti öll séu mun vinsamlegri en sú mynd sem gjarnan birtist af Alþingi í fjölmiðlum. Aðalsamkomur félagsins eru árlegur aðalfundur, árshátíð og svo sumarferðir. Ánægjulegt er að eftirlifandi makar fyrrverandi alþingismanna koma líka til að gleðjast með á árshátíðum og í hinum vinsælu sumarferðum. Félagið hefur einnig samband við systurfélög á Norðurlöndum og skiptist á heimsóknum við þau.

Nánar...


Þessi vefur er prófaður og vottaður
samkvæmt alþjóðlegum stöðlum.

Erlendar fréttir
Borði

Sóknarfæri fyrir foreldra grunnskólabarna - grein frá Heimili og skóla

Heimili og skóliForeldrasamstarf er mjög mikilvægt og ef foreldrar eru virkir getur það haft úrslitaáhrif á líðan barnanna og  námsárangur. Samkvæmt niðurstöðum rannsókna kemur ávinningur af foreldrasamvinnu aðallega fram í betri líðan barna og unglinga, bættum námsárangri og ekki hvað síst minni hegðunarvandamálum

Samráðsvettvangur – skólaráð

Í nýju menntalögum sem samþykkt voru síðastliðið sumar er aukin áhersla lögð á samstarf við foreldra og aðkomu þeirra að skólastarfi. Þar er kveðið á um lögbundið skólaráð við hvern grunnskóla í stað foreldra- og kennararáðs og skólastjóri skal sitja í ráðinu og stýra því. Gert er ráð fyrir níu manna ráði við hvern skóla með tveimur fulltrúum foreldra, tveimur fulltrúum kennara, einum fulltrúa annars starfsfólks, tveimur fulltrúum nemenda og einum fulltrúa grenndarsamfélagsins eða viðbótar fulltrúa foreldra.

Skólaráði skal sjálft velja úr hópi fulltrúa grenndarsamfélags í ráðið. Þarna er sóknarfæri fyrir hvern skóla til að móta sér sérstöðu og taka mið af nærsamfélagi sínu. Þessi fulltrúi grenndarsamfélagsins gæti t.d. verið íþróttafulltrúi íþróttafélagsins í hverfinu/sveitarfélaginu, amma eða afi nemanda, velunnari skólans, forstöðumaður félagsmiðstöðvar samfélagsins eða sá aðili sem hugsanlega getur aðstoðað skólann við að móta sína sérstöðu sem við á að hverju sinni. Skólaráð á að vera samráðsvettvangur skólastjóra og skólasamfélags, foreldra og nemenda um skólahald. Það tekur m.a. þátt í stefnumörkun fyrir skólann og mótun sérkenna hans.

Það þarf heilt samfélag til að ala upp barn.

 Í raun eru það margir hópar sem mynda skólasamfélagið í hverjum skóla og fer það eftir sérstöðu hvers sveitarfélags hverjir það eru sem hafa áhrif að líðan og hagi barns. Innan skólaveggjanna eru það nemendur, starfsfólk skólans og foreldrar og því er mikilvægt að þessir hópar vinni vel saman.  Við þetta bætist gjarnan tónlistarskóli, íþróttafélag, frístundaheimili, félagsmiðstöð, heilsugæsla, kirkja og ýmsir aðrir aðilar. Þess vegna er afar mikilvægt að þessir aðilar starfi saman og hafi samráð. Til þess að það gangi þarf að ræða reglulega um áherslur og komast að samkomulagi um meginviðmið í samfélaginu. Þá er mikilvægt að hlutverk hvers og eins sé vel skilgreint og kynnt.  Öllum þarf að vera ljóst hvernig ferlið er varðandi ábendingar um það sem betur má fara í leik og starfi barns hverju sinni. Þetta er m.a. kjörið verkefni fyrir skólaráð að vinna að, móta og vinna stefnu sem hentar hverjum skóla fyrir sig.

Heimili og skóli hvetja foreldra til að taka virkan þátt í undirbúningi skólaráða og nýta þetta sóknarfæri til að koma sjónarmiðum foreldra á framfæri á þessum mikilvæga samráðsvettvangi. Afar brýnt er fyrir fulltrúa foreldra í skólaráðum að hafa traust bakland í foreldrahópnum og þar getur m.a. öflugt foreldrafélag og virkir bekkjarfulltrúar skipt máli. Öflugt foreldrastarf skiptir máli.

Framundan eru mörg sóknarfæri fyrir okkur foreldra á nýju skólaári og þau skulum við nýta vel í þágu barnanna.  Skylda okkar foreldra er að bera ábyrgð á velferð barnanna og það gerum við með því að taka þátt í leik þeirra og starfi.

Sjöfn Þórðardóttir

formaður Heimilis og skóla – landssamtaka foreldra

 
Borði
Facebook MySpace Twitter Digg Delicious Stumbleupon Google Bookmarks RSS Feed 
<<  Júlí 2010  >>
 S  M    M  F  F  L 
      1  2  3
  4  5  6  7  8  910
11121314151617
18192021222324
25262728293031