Þróunarverkefni grunnskólanna á Snæfellsnesi ,,Orð af orði“
Vinna nemenda allra grunnskóla á Snæfellsnesi að þróunarverkefninu Orð af orði hefur væntanlega ekki farið fram hjá íbúunum sl. vetur. Markmiðið með verkefninu var eins og áður hefur komið fram að efla og auka virkan orðaforða nemenda og hæfni til að ráða í merkingu orða til að auðvelda þeim skilning á töluðu og rituðu máli. Nú er þróunarverkefninu formlega lokið, krakkarnir hafa unnið fjölbreytt verkefni í allan vetur á haustönn var mikil orðaforðavinna og eftir áramót bættist við vinna með hugtakakort. Verkefnastjórnar tók saman lokaskýrslu um verkefnið sem hægt er að skoða á heimasíðum skólanna. Eins og lesa má í skýrslunni í samantektum skólanna á mati á árangri og viðhorfskönnun kennara þá virðist markmiðin hafa náðst að mestu. Útkoman úr Orðalykli í öllum skólum sýnir framfarir sem er helsti ávinningurinn.
Samkvæmt niðurstöðum viðhorfskönnunar sem verkefnastjórn lagði fyrir kennara töldu 80% þeirra að þróunarverkefnið hefði eflt orðaforða nemenda, 80% þeirra töldu að lesskilningur hefði aukist, 84% þeirra töldu að lestraráhugi nemenda hefði eflst og 61% að verkefnið hefði orðið til þess að fá nemendur til að nýta hugtakakort.
Í lifandi skólum er mikilvægt að fylgjast vel með nýjungum i kennsluháttum og innleiða þá í kennarasamfélagið. Verkefnið hefur svo sannarlega gert það, því samkvæmt könnunni hyggjast 70% kennara nýta sér orðaforðavinnu næsta vetur, 64% ætla að vera með yndislestur og 77% að gerð hugtakakorta. Eins og fram kemur í mati skólanna þá hyggjast þeir allir halda vinnunni áfram og stefnt er að áframhaldandi samvinnu þeirra á milli, þar sem verkefnið hefur gefið skólunum aukin tækifæri til samvinnu og skoðanaskipta. Vinnubrögðin falla vel að hugmyndum um heildstæða móðurmálskennslu og nýtast í flestum námsgreinum til að byggja upp aukinn orðaforða nemenda.
Hulda kennslu- og námsráðgjafi
Félags og skólaþjónustu Snæfellinga




