Það lagði kolsvartan reyk yfir bæinn að sögn Gunnars Kristjánssonar fréttaritara. Ljóst er að um stórtjón er að ræða vegna stórbrunans í gærkvöldi í gamla fiskmarkaðnumj við Sólvelli. Kalla þurfti allt tiltækt lið Slökkviliðanna á Snæfellsnesi því aðstæður voru erfiðar, bæði var hvasst og norðanátt og einnig voru húsin erfið viðureignar með þrjár samliggjandi byggingar , þröng herbergi, og varð að vinna slökkvistarf utanfrá. Freon- og gaskútar voru í húsunum og var því einnig hætta á sprenginum.