Borði

febrúar

Opnaði Gallery fyrir skömmu.

Ela og handverkið

Hún Elzbieta Krystyna Elísson hefur verið að fást við handverk og hönnun um nokkurt skeið. Hlutirnir sem hún hnýtir úr vaxborinni bómull og hör með perlum, steinum og jafnvel hrauni eru hinir eigulegustu skartgripir.  Segist Ela eins og hún er kölluð ekki vita til þess að samskonar framleiðsla sé til hér á landi.  Ela ákvað að koma verki sínu á framfæri með því að opna á föstudaginn 6. febrúar Gallery í kjallara einbýlishússins sem hún og eiginmaður hennar Pétur Elísson reistu fyrir allmörgum árum og er að Fellabrekku 3 í Grundarfirði.  Pétur maður Elu lést á síðasta ári en Ela sem er pólsk að uppruna hefur verið búsett í Grundarfirði í fjölmörg ár. GK.

 

Úr slorinu

Þeir voru ánægðir í sólinni á  bryggjunni í Grundarfirði í síðustu viku,  feðgarnir Freyr Jónsson og Þórarinn sonur hans þar sem þeir hentu slöttólfs þorski milli kara. Freyr gerir út bátinn Sprota og sagði hann að aflinn þennan daginn væri um 1.5 tonn af mjög góðum þorski sem fengin væri í Brúninni. Freyr var ánægður með aflabrögðin að undaförnu sagðist vera með 50 net í sjó og ekki nema klukkutíma stím á miðin. Þess má geta að Freyr kom færandi hendi upp á dvalarheimilið Fellaskjól með gotu og lifur sem var tekið með þökkum og eldað samdægurs.
GK.
 

Eyrbyggja Sögumiðstöð hlaut ekki Eyrarrósina að þessu sinni

Eyrarrósin afhent á BessastöðumEyrarrósin 2009 kom í hlut Landnámssetur Íslands í Borgarnesi og veittu aðstandur þess, þau Kjartan Ragnarsson og Sigríður Margrét Guðmundsdóttur, viðkenningunni móttöku í dag við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Fjölmennt var við athöfnina en auk veitingu viðurkenningarinnar, flutti Ólöf Arnalds eigin tónlist við afar góðar undirtektir gesta.

Viðurkenningin er fjárstyrkur að upphæð 1.5 milljón, verðlaunagripur eftir Steinunni Þórarinsdóttur
auk flugmiða frá Flugfélagi Íslands. Dorrit Moussaieff forsetafrú afhenti viðurkenninguna og hún er jafnframt verndari Eyrarrósarinnar. Þrjú verkefnin voru tilnefnd. Eyrbyggja, sögumiðstöð í Grundafirði og Skaftfell¸ miðstöð myndlistar á Austurlandi, Hlutu þau 200 þúsund króna fjárstyrk hvort og flugmiða frá Flugfélagi Íslands. Af vef listahátíðar

 

Frá Félagsmiðstöðinni Eden

Særós Ósk SævaldsdóttirNú er stafsárið hálfnað í félagsmiðstöðinni Eden. Starfið í Eden það sem af er vetri hefur gengið mjög vel, þrátt fyrir erfiða byrjum. Aðkoman í Eden eftir sumarfrí var mjög slæm.  Búið var að stela fullt af verðmætum úr félagsmiðstöðinni. Þar á meðal var búið að taka báðar PS2 tölvurnar okkar, fullt af tölvuleikjum, dvd myndum auk þess sem búið var að taka gos og sælgæti.

Þykir okkur þetta mjög miður þar sem þetta eru verðmæti sem krakkarnir eru búin að safna sér fyrir og eiga. Þessi stuldur hefur sett skugga sinn yfir starfið í vetur þar sem þetta er hluti af því sem félagsmiðstöðin hefur upp á að bjóða.

En sem betur fer er fullt af skemmtilegum ungmennum hér í bæ  sem eru uppfullir af skemmtilegum hugmyndum. Meðal annars hefur vaknað mikill spilaáhugi hjá krökkunum og vantar okkur því ný eða gömul spil. Okkur datt í hug að athuga hvort einhver ætti spil sem liggja upp í skáp og safna ryki sem við í félagsmiðstöðinni hefðum not af. Hægt er að koma með þau á opnunartíma á mánudögum og miðvikudögum frá 20:00 – 22:00.

Lesa meira...

 

Unglingalandsmóti frestað um eitt ár

Fréttatilkynning frá UMFÍ

merki landsmóts UMFÍÁ stjórnarfundi Ungmennafélags Íslands, sem haldinn var á Sauðárkróki um helgina, lá fyrir bréf frá Héraðssambandi Strandamanna, HSS, þar sem fram kemur að sambandið treysti sér ekki til að halda Unglingalandsmót UMFÍ 2010 á Hólmavík en mótinu hafði verið úthlutað til þeirra á síðasta ári.

Einnig lá fyrir bréf frá Héraðssambandi Snæfellsness- og Hnappadalssýslu, HSH,  þar sem óskað er eftir frestun á framkvæmd  Unglingalandsmóts UMFÍ sem fer  fram um verslunarmannahelgina í sumar til ársins 2010. Þetta var samþykkt á stjórnarfundi UMFÍ í ljósi þess að HSS hafði fallið frá sinni umsókn.

Samþykkt var að leita til sambandsaðila UMFÍ og þeim gefinn kostur á að taka að sér framkvæmd Unglingalandsmótsins í sumar. Nú þegar hafa fjórir aðilar gefið sig fram og óskað eftir því að taka að sér framkvæmd Unglingalandsmóts UMFÍ 2009.

Ákvörðun um mótsstað verður tekin af stjórn UMFÍ mánudaginn 16. febrúar nk.

Frekari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri UMFÍ Sæmundur Runólfsson í síma 568-2929 .

 
Fleiri greinar...
Borði
Facebook MySpace Twitter Digg Delicious Stumbleupon Google Bookmarks RSS Feed 
<<  Júlí 2010  >>
 S  M    M  F  F  L 
      1  2  3
  4  5  6  7  8  910
11121314151617
18192021222324
25262728293031