Lúðrasveitin blómstrar
Lúðrasveit Tónlistarskóla Grundarfjarðar fagnaði eins árs afmæli nú í janúar og borðuðu krakkarnir ljúffenga afmælistertu á æfingu af því tilefni. Starfið hefur farið fram úr björtustu vonum segir stjórnandinn Baldur Orri Rafnsson þetta er fyrsta starfsárið og greinilegt að nemendur eru mjög áhugasamir um að standa sig vel í Lúðrasveitinni.
Lúðrasveitin mun fara í æfingabúðir síðustu helgi í mars í Tónlistarskólanum í Stykkishólmi og æfa sig fyrir tónleika sem haldnir verða 2. apríl í Samkomuhúsi Grundarfjarðar. Þema tónleikanna er suðræn sveifla og mun Lúðrasveitin ásamt góðum gestum leika lög frá Suður Ameríku og Afríku. Ágóði af tónleikum mun renna í hljóðfærasjóð Lúðrasveitarinnar.
Nú er 21 nemandi í Lúðrasveitinni þessi mikli fjöldi hefur gert það að verkum að þurft hefur að fá lánuð hljóðfæri frá Tónlistarskóla Stykkishólms sem þakkað er fyrir.
Nú stendur til að reyna að fjárfesta í þeim hljóðfærum sem vantar og er kostnaður áætlaður um 350.000 kr að sögn þeirra Baldurs stjórnanda Lúðrarsveitarinnar og Þórðar Guðmundssonar skólastjóra Tónlistarskólans vonast þeir til að tónleikarnir í aprílbyrjun geri kaupin möguleg. Framundan hjá Lúðrasveitinni er að fara á Landsmót skóla lúðrasveita sem haldið Vestmannaeyjum í október nk. Þar munu um 350 krakkar af öllu landinu blása saman í lúðra sem er mikil lífsreynsla og enn meiri skemmtun vonandi segir Baldur.
Fyrir skömmu afhenti Lionsklúbbur Grundarfjarðar Lúðrasveitinni 100 þúsund króna fjárstyrk til búningakaupa og er meðfylgjandi mynd frá afhendingu styrksins þar sem tveir meðlimir sveitarinnar þær Elín Gunnarsdóttir og Hugrún Elfa Sigurðardóttir munda lúðra sína . Þeir Baldur og Þórður vildu koma á framfæri þakklæti til Lionsklúbbsins sem og þeirra foreldra sem mynda öflugt starf í kringum Lúðrasveitina.
GK.




