Nýting sjávarfalla í Breiðafirði til raforkuframleiðslu
Sturla Böðvarsson leggur fram þingályktunartillögu um nýtingu sjávarfalla í Breiðafirði til raforkuframleiðslu.
Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að gera áætlun um nýtingu sjávarfalla í Breiðafirði til raforkuframleiðslu. Könnuð verði hagkvæmni mismunandi aðferða og staðsetninga. Skipuð verði verkefnisstjórn sem hafi umsjón með gerð áætlunarinnar og ljúki við skýrslu fyrir árslok 2009.
G r e i n a r g e r ð .
Á undanförnum árum hefur áhugi aukist á óhefðbundnum endurnýjanlegum orkugjöfum, svo sem vindorku, sólarorku og sjávarföllum. Rannsóknir og tilraunir fara nú fram víða um heim á notkun sjávarfalla til raforkuframleiðslu og mikil þróun er að verða á því sviði. Því hefur verið haldið fram að í sjónum sé falin 5000 sinnum meiri endurnýjanleg orka en orkuþörf heimsins er nú. Hægt er að virkja sjávarföll á tvo vegu, annars vegar með því að stífla sund og firði og virkja hæðarmun sjávarfalla og hins vegar með því að virkja hreyfiorku streymisins án þess að hindra streymið. Fyrri kosturinn hefur verið reyndur á nokkrum stöðum en þykir ekki umhverfisvænn.
Gott dæmi um það er orkuverið La Rance á Bretagneskaga í Frakklandi, þar sem sund var þverað, en það hefur verið starfrækt frá árinu 1966. Sú aðferð þykir hafa haft neikvæð áhrif á umhverfið og nú er verið að leita hagkvæmra leiða til að beisla sjávarföllin í meiri sátt við umhverfið. Seinni kosturinn þ.e. að virkja hreyfiorkuna án stíflu, er tæknin sem helst er horft á nú og flest þróunarverkefni byggjast á. Ávallt er þörf fyrir orku í samfélaginu og nauðsynlegt er að hafa þekkingu á því hvar hægt sé að fá hana með góðu móti. Fjöldi ónýttra möguleika bíður okkar til notkunar og rannsókna.
Enda þótt Íslendingar eigi marga ónýtta kosti í virkjun vatnsorku og jarðvarma er nauðsynlegt að fylgjast vel með öðrum möguleikum sem skapast með tækniþróun sem gæti innan tíðar leitt af sér samkeppnishæfa virkjunarkosti. Dönsk, norsk, enskt og skoskt fyrirtæki hafa verið að þróa mismunandi aðferðir og hafa sum hver þegar hafið rafmagnsframleiðslu.
Á Íslandi verður mesti munur flóðs og fjöru í Breiðafirði, yfir 5 metrar. Í Hvammsfjarðarröstinni verður straumhraði yfir 12 m/sek. Engar nákvæmar rannsóknir liggja fyrir um virkjanlega sjávarorku við Ísland. Því liggur beint við að kanna hvaða möguleikar gefast þar, bæði með tilliti til staðsetningar sjávarfallavirkjana og mismunandi tegunda virkjana. Með virkjun sjávarfalla í Breiðafirði gætu skapast umfangsmikil tækifæri til atvinnuuppbyggingar á svæðinu. Með tilliti til stöðu efnahags og atvinnumála í landinu er nauðsynlegt að leita allra tiltækra leiða til þess að nýta kosti endurnýjanlegra orkugjafa til atvinnuuppbyggingar. Í þeim tilgangi er þessi tillaga flutt.
Vakin er athygli á því að með tillögunni fylgja fróðlegir viðaukar sem lýsa vel þeim möguleikum sem fyrir hendi eru. Viðaukana má nálgast hér. Fréttatilkynning




