Borði

Söngkeppni í FSN

Lilja MargrétNemendur Fjölbrautarskóla Snæfellinga efndu til sinnar árlegu söngkeppni í gærkvöld.

Söngkeppni þessi sem kölluð er Gólið er liður í að velja fulltrúa til að taka þátt í Söngvakeppni Framhaldsskólanna.  Sjö söngatriði kepptu um sigursætið og tókst þátttakendu öllum vel upp við góðar undirtektir áheyrenda sem fylltu salinn.  Dómarar í keppninni voru þrír þrautreyndir tónlistarmenn þeir Baldur Orri Rafnsson, Sigurður Gíslason og Hólmgeir Sturla Þórsteinsson þeirra úrskurður var að Lilja Margrét Riedel 17 ára Stykkishólmsbúi hefði staðið sig best og mun hún því taka þátt í Söngvakeppni Framhaldsskólanna sem fram fer á Akureyri 4. Apríl.

 
Borði
Facebook MySpace Twitter Digg Delicious Stumbleupon Google Bookmarks RSS Feed 
<<  September 2010  >>
 S  M    M  F  F  L 
     1  2  3  4
  5  6  7  8  91011
12131415161718
19202122232425
2627282930