Eldri fréttir
Ályktun frá stjórn Kennarasambands Íslands

Stjórn Kennarasambands Íslands lýsir yfir fullum stuðningi við baráttu Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna fyrir bættum launakjörum. Stjórnin hvetur Launanefnd sveitarfélaga til að hverfa frá þeirri stefnu sinni að fjötra starfsmenn sveitarfélaga í spennitreyju lágra launa. Það er ólíðandi að grunnlaun starfsmanna sveitarfélaga sem lægst hafa launin skuli ekki hækka í það minnsta til jafns við það sem gerst hefur almennt meðal launafólks á Íslandi að undanförnu.

Stjórn KÍ hvetur sveitarstjórnarmenn til að sýna sanngirni og ganga þegar í stað til samninga við Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna.

Nánar...


Þessi vefur er prófaður og vottaður
samkvæmt alþjóðlegum stöðlum.

Erlendar fréttir
Borði

Miðstöð nýrra tækifæra í atvinnu og námi opnuð

Til að bregðast við þeim miklu breytingum í efnahagsmálum sem nú blasa við hefur verið ákveðið að opna miðstöð í Grundarfirði fyrir þá sem leita nýrra tækifæra í námi eða vinnu. Verkefnið er unnið í samvinnu Verkalýðsfélags Snæfellinga, Grundarfjarðarbæjar og Atvinnuráðgjafar Vesturlands. Húsnæði miðstöðvarinnar verður á Borgarbraut 2, neðri hæð, en þar er einnig aðstaða verkalýðsfélagsins. Í upphafi verður opið hús frá 9:00 til 11:00 alla virka daga, þar sem kjörið er að koma saman í spjall og kaffisopa. Einnig verður samstarf við ýmsar stofnanir og þannig verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá af hagnýtum námskeiðum og fyrirlestrum. Námskeiðin verða öllum opin en miða sérstaklega að því að hvetja einstaklinga til dáða á þessum erfiðu tímum. Sem dæmi um viðfangsefni má nefna áhugasviðspróf, lesblindunámskeið, gerð ferilskrár, nýsköpun, sjálfsstyrking, sparnaðarráð og heimilisbókhald. Stefnt er að því að miðstöðin opni í næstu viku.

 
Borði
Facebook MySpace Twitter Digg Delicious Stumbleupon Google Bookmarks RSS Feed 
<<  September 2010  >>
 S  M    M  F  F  L 
     1  2  3  4
  5  6  7  8  91011
12131415161718
19202122232425
2627282930