Sunnudaginn seinasta, þann 22. febrúar, voru nokkrir 8 og 9 ára krakkar vígðir skátar. Dagurinn byrjaði á gönguferð í Gilið þar sem drekaskátarnir léku sér í þrautum og lærðu að kveikja eld og að sjálfsögðu að grilla sykurpúða. Foreldrar drekaskátanna komu í heimsókn, við fórum öll saman í einn leik og síðan voru drekaskátarnir vígðir og fengu gula klútinn sinn. Eftir vígslu var boðið upp á skátakakó til ilja sér og því loknu hvöttumst við.
Dagurinn 22. febrúar er sérstakur dagur í augum skáta um allan heim því þann dag fæddist stofnandi skátahreyfingarinnar, Sir Baden Powell, og allir skátar minnast þess með því að halda daginn hátíðlegan og um leið minna sig á til hvers skátastarf er, þ.e.a.s. að láta gott af sér leiða. Undanfarna daga hefur átakið „Góðverk dagsins" verið í gangi og er kynnt á www.godverkin.is, drekaskátar og fálkaskátar í skátastarfi Grundarfjarðarkirkju hafa verið hvattir til þess að gera eins mörg góðverk og þeir geta síðastliðna viku og næstu daga. Hvet ég alla til að taka þátt í þessu átaki og gera a.m.k. eitt góðverk á dag.
Aðalsteinn Þorvaldsson
Sóknarprestur Setbergsprestakalls.