Eldri fréttir
Viltu vera víkingur í sumar?
Senn hefjast komur skemmtiferðaskipa til Grundarfjarðar. Undanfarin ár hefur vel verið tekið á móti farþegum þeirra og í sumar verður engin undantekning þar á. Fyrsta skipið kemur 22. maí og það síðasta 6. september, en þau eru alls 13 talsins.

Nú leitum við að opnum og hressum aðilum til að manna móttökuhópinn víðfræga sem starfað hefur undanfarin tvö ár. Ertu á aldrinum 16-25 ára, og til í að taka þátt í skemmtilegu og gefandi starfi? Ekki sakar að geta sungið eða spilað á hljóðfæri en það er þó ekki skilyrði. Vinnan er launuð.
Nánar...


Þessi vefur er prófaður og vottaður
samkvæmt alþjóðlegum stöðlum.

Erlendar fréttir
Borði

Útskrift hjá FSN


Föstudaginn 18. desember  brautskráði Fjölbrautaskóli Snæfellinga  12 nemendur,  alla með stúdentspróf.   Af  náttúrufræðibraut útskrifuðust  þau Hafdís Guðrún Benediktsdóttir og Njáll Gunnarsson.  Af  félagsfræðabraut útskrifuðust  þau Ágúst Ingi Guðmundsson, Ása Gunnarsdóttir, Gunnhildur Gunnarsdóttir, Magnús Már Leifsson, Maria Joao de Jesus Neves, Ólöf  Rut Halldórsdóttir, Steinunn Alva Lárusdóttur og Unnur Lára Ásgeirsdóttir. Tveir nemendur útskrifuðust með viðbótarnám til stúdentprófs þau Edda Baldursdóttir og Tómas Freyr Kristjánsson.
Hæstu einkunn á stúdentsprófi hlaut Maria Joao de Jesus Neves og  fékk  hún  veglega bókagjöf  gefna af Snæfellsbæ. Maria Joao hlut einnig verðlaun fyrir góðan árangur í félagsfræði og sálfræði,  gefin af Snæfellsbæ og Stykkishólmsbæ. Fyrir góðan árangur í sagnfræði fékk Ólöf Rut Halldórsdóttir verðlaun, gefin af Snæfellsbæ. Edda Baldursdóttir hlaut  verðlaun fyrir góðan árangur í Sálfræði gefin af Gámaþjónustu Vesturlands.  Fyrir góðan árangur í líffræði fékk Njáll Gunnarsson verðlaun og voru þau gefin af Náttúrustofu Stykkishólms.
Einnig fékk Magnús Már Leifsson viðurkenningu fyrir störf sín í þágu nemendafélagsins  gefin af  Fjölbrautaskóla Snæfellinga.   
Útskriftarathöfnin hófst á því að  Ólöf Rut Halldórsdóttir, útskriftarnemi, og Sylvía Ösp Símonardóttir, nemandi í FSN, fluttu nokkur jólalög á flygil og þverflautu. Skólameistari Fjölbrautaskóla Snæfellinga, Skúlína Hlíf Kjartansdóttir, brautskráði nemendur og flutti síðan ávarp. Næst afhenti Pétur Ingi Guðmundsson, aðstoðarskólameistari  verðlaun fyrir góðan námsárangur. Nýstúdentinn Ólöf Rut Halldórsdóttir flutti síðan jazz-lagið „Round Midnight“, við undirleik Sylvíu Aspar Símonardóttur  Hreinn Þorkelsson, kennari við skólann  kvaddi síðan nemendur  fyrir hönd starfsfólks.   Áður en þessari hátíðlegu  athöfn lauk flutti síðan  nýstúdentinn Magnús Már Leifsson ræðu  fyrir hönd nýstúdenta og kvaddi þar með skólann og starfsfólkið fyrir þeirra hönd. Að dagskrá lokinni  sleit skólameistari skólaárinu og bauð upp á kaffiveitingar í boði Fjölbrautaskóla Snæfellinga.
 
Facebook MySpace Twitter Digg Delicious Stumbleupon Google Bookmarks RSS Feed 

Vikublaðið er í

sumarfríi til

10. ágúst 2010

Hafið gott sumar!

Ritstjóri

<<  Ágúst 2010  >>
 S  M    M  F  F  L 
  1  2  3  4  5  6  7
  8  91011121314
15161718192021
22232425262728
293031