Ályktun bæjarstjórnar Grundarfjarðar vegna niðurskurðar hjá Sýslumannsembætti Vesturlands
Bæjarstjórn Grundarfjarðar hefur sent frá sér ályktun og mótmælis fyrirhuguðum niðurskurði hjá embætti Sýslumanns Snæfellsinga.
„Bæjarstjórn Grundarfjarðar lýsir þungum áhyggjum af boðuðum niðurskurði hjá Sýslumanni Snæfellinga. Bæjarstjórnin ítrekar fyrri ályktanir og mótmælir því að niðurskurður á þjónustu hins opinbera skuli fyrst og fremst verða á landsbyggðinni.
Bæjarstjórn Grundarfjarðar mótmælir harðlega ákvörðun um lokun umboðsskrifstofu sýslumannsembættisins í Grundarfirði frá áramótum og telur að ákvörðunin sé ekki byggð á faglegum forsendum heldur sé um tilviljanakennda ákvörðun að ræða. Dagleg opnun umboðsskrifstofunnar í Grundarfirði hefur mælst mjög vel fyrir og verið vel nýtt af íbúum í fjölbreyttum erindagjörðum. Lokun skrifstofunnar ýtir sparnaði embættisins yfir á almenna íbúa í Grundarfirði og eykur kostnað þeirra. Bæjarstjórnin skorar á sýslumann að endurskoða þessa ákvörðun með hliðsjón af þörfum og þjónustu við íbúa.
Boðuð fækkun í löggæsluliði yfir vetrartímann um 25% á þessu víðfeðma landsvæða minnkar öryggi íbúa svæðisins og lengir viðbragðstíma lögreglunnar verulega. Bæjarstjórnin telur að nú þegar sé allt of langt gengið í niðurskurði á löggæslu á svæðinu.
Bæjarstjórn Grundarfjarðar skorar á dómsmálaráðherra og fjárveitingavaldið að endurskoða fjárveitingar til embættis Sýslumanns Snæfellinga“.




