Eldri fréttir
reglugerð um öryggisbúnað barna

Til foreldra og forráðamanna.

Af gefnu tilefni viljum við minna á reglugerð um öryggisbúnað barna.

 

Í 71. gr. umferðarlaga segir m.a.:
Ökumaður skal sjá um að í stað öryggisbeltis, eða ásamt því, noti barn viðurkenndan
barnabílstól, beltispúða eða annan sérstakan öryggis- og verndarbúnað ætlaðan börnum lægri en 150 sm á hæð. Ef slíkur búnaður er ekki í bifreið skal nota öryggisbelti fyrir barnið

Barn sem er lægra en 150 sm á hæð má ekki vera farþegi í framsæti bifreiðar sem búin er
uppblásanlegum öryggispúða fyrir framan sætið.

Nánar...


Þessi vefur er prófaður og vottaður
samkvæmt alþjóðlegum stöðlum.

Erlendar fréttir
Borði

Forgangsröðun í þágu barna og menntunar

Ályktun frá Félagi leikskólakennara

Á fundi stjórnar Félags leikskólakennara þann 9. desember 2009 voru til umræðu efnahagsmál þjóðarinnar og áhrif niðurskurðar í leikskólum á gæði leikskólastarfs og menntun leikskólabarna.

Eftirfarandi ályktun var samþykkt:

Stjórn Félags leikskólakennara telur að nú þegar hafi mörg sveitarfélög og rekstraraðilar leikskóla gengið eins langt og mögulegt er í niðurskurði í leikskólastarfi og að mál sé að linni. Leikskólar nutu ekki góðærisins nema að mjög takmörkuðu leyti. Þvert á móti bitnaði það á leikskólastarfi með þeim hætti að víða gekk illa að ráða starfsfólk vegna þenslu og samkeppni á vinnumarkaði og þar af leiðandi voru margir skólar ekki fullsetnir svo mánuðum skipti. Þetta ástand hafði um árabil mikil áhrif á starfsemi skólanna, meðal annars jókst álag á stjórnendur og annað starfsfólk. Ástandið hafði ekki síður áhrif á börn og foreldra þeirra, til dæmis þegar þurfti að skerða dvalartíma barna og inntaka nýrra nemenda dróst.

 

 

Þegar loks tekst að ráða starfsfólk og koma starfsemi í jafnvægi fer í hönd blóðugur niðurskurður, sums staðar svo mikill að faglegt starf er í hættu. Þetta mun hafa mikil áhrif á menntun og umönnun leikskólabarna enda hafa talsmenn foreldra víða stigið fram og lýst óánægju sinni og áhyggjum.

Stjórn Félags leikskólakennara skorar á sveitarfélög og aðra rekstraraðila að láta nú þegar staðar numið í niðurskurði í leikskólum og annars staðar í skólakerfinu og standa við fögur fyrirheit um að slá skjaldborg um menntun barna og ungmenna. Það er mikill tvískinnungur að skera niður í stórum stíl og ætlast um leið til þess að starfsfólk haldi uppi sömu gæðum og þjónustu og áður. Þegar þrengir að í samfélaginu er öruggt og öflugt skólakerfi ein mikilvægasta stoðin til að tryggja börnum góða menntun, umönnun og skjól. Það er réttlætismál að forgangsraða í þágu þeirra þegar kemur að fjárhagsáætlanagerð.

 

Reykjavík, 9. desember 2009

 

F.h. stjórnar Félags leikskólakennara

Björg Bjarnadóttir formaður


 

 
Facebook MySpace Twitter Digg Delicious Stumbleupon Google Bookmarks RSS Feed 

Vikublaðið er í

sumarfríi til

10. ágúst 2010

Hafið gott sumar!

Ritstjóri

<<  Ágúst 2010  >>
 S  M    M  F  F  L 
  1  2  3  4  5  6  7
  8  91011121314
15161718192021
22232425262728
293031