Eldri fréttir
Félagsmiðstöðin Eden.

Kæru lesendur,
Þessi pistill er skrifaður fyrir hönd félagsmiðstöðvarinnar Eden í Grundarfirði.
 Veturinn hefur verið mjög ánægjulegur og mikið um að vera hjá krökkunum, bæði í félagsmiðstöðinni og utan hennar.
Félagsmiðstöðin stóð fyrir mörgum skemmtilegum uppákomum, svo sem mála myndir á striga, Söngvakeppni Samfés, Stíll, koddaslag, body balance, bíókvöld, rafmangslaust kvöld, hraðstefnumót, lopasokkabolta og kókosbollukeppni, en mörg voru líka kvöldin sem við sátum í sófunum og spjölluðum saman. Einnig voru haldin ýmis böll, eins og  Valentínusarball, æskulýðsball,  jólaball og svo var hið árlega Samfésball sem haldið var í Laugardalshöllinni í byrjun mars. Einnig fór ungmennaráð Edens á Landsmót Samfés sem er árlegur viðburður og var að þessu sinni haldinn á Sauðárkróki.

Nánar...


Þessi vefur er prófaður og vottaður
samkvæmt alþjóðlegum stöðlum.

Erlendar fréttir
Borði

Unnu nauman heimasigur í blaki

Á mánudagskvöldið tóku Grundfirðingar á móti Hamri, Hveragerði í 2 deild karla í blaki.

Leikurinn var mjög jafn og skemmtilegur en með stuðningi áhorfenda og trommusveitarinnar náðu Grundfirðingar að landa naumum heimasigri  3-2.

(25-22   20-25   25-22  19-25  18-16)

Í fyrstu hrinu var jafnt á öllum tölum upp að 12-12 en þá náðu heimamenn

3 stiga forskoti sem þeir héldu út hrinun. Í 2 hrinu var einnig jafnt framan af en með góðri baráttu náðu Hamarsmenn að sigra þá hrinu. í 3 hrinu var enn allt jafnt en heimamenn voru ekki tilbúnir að gefa leikinn eftir náðu að síga framúr og unnu þá hrinu. Í 4 hrinu var enn á ný allt jafnt framan af en  gestirnir voru ákveðnir í að gefa ekkert eftir og þegar staðan var 10 -11 tóku þeir sig saman og sigu framúr og unnu hrinuna.

Þá var komið í oddahrinu. Hamarsmenn byrjuðu mjög ákveðnir og komust í

6-9 en þá fóru heimamenn að bíta frá sér og með mikilli baráttu og hörku spennu þá náðu heimamenn að landa sigri með að vinna hrinunna 18-16.

Um 90 gestir voru í húsinu og var stuðningur þeirra mikilvægur í þessum baráttu leik.

 
Facebook MySpace Twitter Digg Delicious Stumbleupon Google Bookmarks RSS Feed 

Vikublaðið er í

sumarfríi til

10. ágúst 2010

Hafið gott sumar!

Ritstjóri

<<  Ágúst 2010  >>
 S  M    M  F  F  L 
  1  2  3  4  5  6  7
  8  91011121314
15161718192021
22232425262728
293031