Líkt og undanfarin ár verður Lionsklúbbur Grundarfjarðar með jólamarkað í Sögumiðstöðinni í desember. Boðið verður upp á fiskmeti, rúgbrauð og bakkelsi og svo auðvitað lifandi jólatré bæði rauðgreni frá Skógræktarfélagi Eyrarsveitar og Normansþyn úr dönskum nytjaskógum. Jólamarkaðurinn verður opnaður fimmtudaginn 10. desember og stendur til laugardagsins 12. des. Opið verður frá kl. 16.00 – 18.00 virku dagana en 14.00 – 16.00 á laugardag. Allur ágóði af þessari sölu rennur til líknar og framfaramála í byggðarlagin. Fréttatilkynning frá Lionsklúbbi Grundarfjarðar.
Myndin er frá opnun jólamarkaðarins á síðasta ári. Mynd GK.