Leikklúbbur Grundarfjarðar.
Leikklúbbur Grundarfjarðar var endurvakinn á Rökkurdögum nú í haust. Óskar Þór Davíðsson og Óli Steinar Sólmundarson fengu það í hendurnar. Óskar reið á vaðið og hafði samband við aðila í bænum og hóaði saman liði sem hafði áhuga á að starfa í klúbbnum. Lokaður stofnfundur var haldin 18 nóvember og þar ákveðin stjórn sem myndi starfa fram að fyrsta Aðalfundi. Stjórnina skipa; Óskar Þór Davíðsson formaður, Lára Magnúsdóttir ritari, Óli Steinar Sólmundarson, Dagfríður Gunnarsdóttir (Dæja)og Halldóra Hjörleifsdóttir (Hadda) meðstjórnendur. Fjóla Bjarnadóttir sér um gjaldkera stöðuna en situr þó ekki í stjórn.
Opinn stofnfundur var svo haldinn þriðjudaginn 24 nóvember í Sögumiðstöðinni. Sá fundur gekk mjög vel og mættu 15 manns. Á þeim fundi var ákveðið að setja upp leikrit fyrir jól, sem er danskur einþáttungur og heitir „ Aðfangadagur á háaloftinu“ sem fjallar um jólasveinafjölskyldu, jólasveinapabba og jólasveinamömmu ásamt jólasveinabörnunum þeirra og fólkinu í kringum þau. Æfingar hafa gengið vonum framar en hópurinn leikstýrir sér sjálfur með aðstoð Inga Hans. Ákveðið var að sýna leikritið í Sögumiðstöðinni og vera með smá jólastund að lokinni sýningu. Sýningar eru sem hér segir:
„ Aðfangadagur á Háaloftinu“
Frumsýning fimmtudaginn 17. desember kl 19.30.
Sunnudagur 20. des kl 19.30
Mánudagur 21. des kl 19.30
Sunnudagur 27. des kl 19.30
Forsala miða byrjar mánudaginn 14. Des kl 16.00
í síma 865-5102 (Hadda) eða 868-4474 (Lára).
Ósóttar pantanir eru seldar eftir kl 18 daginn fyrir sýningu.
Verð á sýningar
6 ára og yngri fá frítt í fylgd með fullorðnum
6-15 ára 500 kr
15 ára og eldri 1000 kr.
Leikklúbburinn hefur sett markið hátt og stefnir á stærri leikrit á komandi árum. Fyrsta mál á dagskrá eftir áramót verður að skrá klúbbinn í Bandalag íslenskra leikfélaga en því fylgja miklir möguleikar. Leikfélög innan Bandalagsins geta sótt um styrki en bandalagið er ríkisstyrkt. Einnig eru ýmis fríðindi s.s. afsláttur á leikmunum, förðunarvörum ofl. Eftir skráningu er stefnt að því að finna gott og skemmtilegt leikrit sem gaman er að setja upp í litlum bæ og höfðar til sem flestra. Fyrirhugaðar áheyrnaprufur verða og því geta allir sem hafa áhuga tekið þátt. Ekki er nauðsynlegt að hafa áhuga á því að leika vegna þess að það er margt annað sem þarf að huga að við uppsetningu leikrits. Það þarf að sjá um förðun, búninga, leikmynd og margt, margt fleira.
Með von um góð viðbrögð og að sjá sem flesta á sýningum.
Stjórn Leikklúbbs Grundarfjarðar



