Eldri fréttir
Ferðafélag Snæfellsness með vefsíðu
Ný heimasíða Ferðafélags Snæfellsness var tekin í gagnið fyrir nokkrum dögum. Að sögn Gunnars Njálssonar formanns félagsins, er tilkoma heimasíðu, mikið hjálpartæki til að koma upplýsingum á framfæri, ásamt undirbúning á gönguferðum og öðrum viðburðum. Þar verður einnig að finna ýmsan fróðleik, hægt að lesa um gönguleiðir og skoða myndir, ásamt ferðaáætlun hvers árs. Á næstu dögum bætist margt fróðlegt inn á síðuna.

Slóðin er www.ffsn.is


Þessi vefur er prófaður og vottaður
samkvæmt alþjóðlegum stöðlum.

Erlendar fréttir
Borði

Snæfellskar fréttir 2009

Þau sungu jólin inn

kórsöngur
Nemendur 1. - 4. bekkjar ásamt Sonju Karenu tónmenntakennara og umsjónarkennurum gengu í nokkur fyrirtæki í Grundarfirði síðastliðinn fimmtudag.
Sungu þau skemmtileg jólalög í tilefni jólanna.
Á myndinni  sem Katrín Elísdóttir sendi blaðinu er hópurinn staddur fyrir
utan Landsbankaútibúið.
 

Slökkviliðsmenn Grundarfjarðar í óvenjulegu hlutverki

dagatalNokkrir vaskir drengir í Slökkvilið Grundarfjarðar hafa tekið sig til og gert dagatal fyrir árið 2010. Þetta skemmtilega framtak er hugsað til fjáröflunar fyrir slökkviliðið á þessum erfiðu tímum og verður ágóðanum varið til kaupa á björgunarklippum, námskeiða fyrir slökkviliðsmenn og annarra verkefna til eflingar sveitarinnar. Dagatalið er til sölu í Gallerí Kind og einnig munu fyrirsæturnar ganga í hús á næstu dögum.  Myndin hér til hliðar er af herra nóvember. Dagatalið kostar 2.500 kr.
 

Útskrift hjá FSN


Föstudaginn 18. desember  brautskráði Fjölbrautaskóli Snæfellinga  12 nemendur,  alla með stúdentspróf.   Af  náttúrufræðibraut útskrifuðust  þau Hafdís Guðrún Benediktsdóttir og Njáll Gunnarsson.  Af  félagsfræðabraut útskrifuðust  þau Ágúst Ingi Guðmundsson, Ása Gunnarsdóttir, Gunnhildur Gunnarsdóttir, Magnús Már Leifsson, Maria Joao de Jesus Neves, Ólöf  Rut Halldórsdóttir, Steinunn Alva Lárusdóttur og Unnur Lára Ásgeirsdóttir. Tveir nemendur útskrifuðust með viðbótarnám til stúdentprófs þau Edda Baldursdóttir og Tómas Freyr Kristjánsson.

Lesa meira...

 

Ályktun bæjarstjórnar Grundarfjarðar vegna niðurskurðar hjá Sýslumannsembætti Vesturlands

Bæjarstjórn Grundarfjarðar hefur sent frá sér ályktun og mótmælis fyrirhuguðum niðurskurði hjá embætti Sýslumanns Snæfellsinga.

 

 „Bæjarstjórn Grundarfjarðar  lýsir þungum áhyggjum af boðuðum niðurskurði  hjá  Sýslumanni Snæfellinga.   Bæjarstjórnin  ítrekar fyrri ályktanir og mótmælir því að niðurskurður á þjónustu hins opinbera skuli fyrst og fremst verða á landsbyggðinni.  

Bæjarstjórn Grundarfjarðar mótmælir harðlega ákvörðun um lokun umboðsskrifstofu sýslumannsembættisins í Grundarfirði  frá áramótum  og telur að ákvörðunin sé ekki byggð á faglegum forsendum heldur sé um tilviljanakennda ákvörðun að ræða. Dagleg opnun umboðsskrifstofunnar í Grundarfirði hefur mælst mjög vel fyrir og verið vel nýtt af íbúum í fjölbreyttum erindagjörðum. Lokun skrifstofunnar ýtir sparnaði embættisins yfir á almenna íbúa í Grundarfirði og eykur kostnað þeirra. Bæjarstjórnin skorar á sýslumann að endurskoða þessa ákvörðun með hliðsjón af þörfum og  þjónustu við íbúa.

Lesa meira...

 
Fleiri greinar...
Borði
Facebook MySpace Twitter Digg Delicious Stumbleupon Google Bookmarks RSS Feed 
<<  Mars 2010  >>
 S  M    M  F  F  L 
   1  2  3  4
  8  910111213
14151617181920
21222324252627
28293031